Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar 29. maí 2026 15:32 Skáld hafa öldum saman nýtt andstæður til að skapa merkingu og vídd. Hluti af íslenskunámi, jafnvel grunnskóla, er að læra bókmenntahugtök á borð við andstæður og fá þjálfun í því að koma auga á þær í texta. Í átökunum milli góðs og ills, stríðs og friðar, ljóss og skugga, heiða og láglendis birtist sagan. Andstæðurnar hafa tilgang, þær ramma söguna inn og hjálpa lesanda að skilja átök og dramatík frásagnarinnar. Nú fer í hönd sérstakt sumar í lífi þjóðar. Okkar bíður þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort hefja eigi á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Hvaða skólakrakki sem er á auðvelt með að koma auga á andstæðurnar í málinu. Já eða nei, inni eða úti, með eða á móti. En eins og í bókmenntum þá eru andstæðurnar ekki sagan öll. Það dugar okkur ekki að vita að einhver vill kjósa já og annar nei. Við þurfum meira til að geta greint málið sjálf og mótað okkar afstöðu. Alþingi samþykkti í fyrra að veita 25 milljónum króna í undirbúning þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Niðurstaða utanríkisráðuneytisins var að fénu yrði best varið með því að færa Evrópuhreyfingunni 10 milljónir, Heimssýn 10 milljónir og Vísindavefnum 5 milljónir króna. Þetta var gert í því skyni að „efla umræðu um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu (ESB) og tryggja greiðan aðgang almennings að upplýsingum í aðdraganda fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við ESB. Fyrirhugað er að hreyfingarnar verji fjármagninu til verkefna á borð við fræðslu, greinarskrif og efnisgerð til birtingar á fjölmiðlum og samfélagsmiðlum og skipulagningu funda og ráðstefna um kosti og galla aðildar að ESB,“ eins og það var orðað í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Í nýlegri umsögn sem Gímaldið sendi allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis um breytingar á fjölmiðlalögum er bent á mikilvægi fjölmiðla, ekki síst þegar mikið liggur við. Þjóðin vill nefnilega geta leitað til fjölmiðla og sótt þangað traustar upplýsingar. Í heimsfaraldri COVID-19 sóttu 94,5% Íslendinga upplýsingar til innlendra fjölmiðla og yfir 80% treystu þeim, hlutföll sem mældust mun hærri en í samanburðarlöndum, samkvæmt skýrslu vinnuhóps þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu og COVID-19. Í skýrslunni kemur skýrt fram að fjölmiðlar gegndu lykilhlutverki í að fræða og upplýsa almenning á viðkvæmum tímum. Fjölmiðlafólk var talið með framlínustarfsfólki. Síðan eru liðin nokkur ár og frá því heimsfaraldri lauk hafa komið út þónokkrar skýrslur og stefnur um þjóðaröryggi og áfallaþol samfélagsins þar sem lýst er þungum áhyggjum af upplýsingaóreiðu og falsfréttum. Í undirbúningi fyrir umsögnina fundum við sex skýrslur frá stofnunum ríkisins þar sem þessum áhyggjum er lýst. Eitt eiga þær allar sameiginlegt: Hvergi er minnst á fjölmiðla eða hlutverk þeirra, þrátt fyrir að gögn sýni gildi fjölmiðla þegar áföll dynja yfir. Þessar 25 milljónir sem eiga að fara í að „efla umræðu“ og auk þess í „fræðslu, greinarskrif og efnisgerð til birtingar á fjölmiðlum“ eru ekki ætlaðar til að efla fjölmiðla eða blaðamenn í að takast á við þetta verkefni. Aðeins til að gera fólki sem þegar hefur gert upp hug sinn kleift að boða eigið fagnaðarerindi. Andstæðurnar eru látnar duga. Já og nei, svart og hvítt, heitt og kalt, með eða á móti. Fjölmiðla bíður veglegt hlutverk í sumar og þeir geta sýnt sitt rétta andlit með því að standa undir því. Hlutverk fjölmiðla er að kafa dýpra og reikna má með að margir treysti á fjölmiðla til að fá upplýsingar sem hjálpa þeim að taka ákvörðun áður en haldið er í kjörklefann í haust. Það mun Gímaldið gera án þess að hafa nokkru sinni fengið krónu af opinberu fé. Við, ásamt öðrum íslenskum fjölmiðlum, leggjum okkar á vogarskálarnar til að veita almenningi þá þjónustu sem hann á skilið þetta sérstaka sumar í lífi þjóðar. Þjóðin á það skilið að fá söguna alla. Ekki bara andstæðurnar. Höfundur er blaðamaður og útgefandi fjölmiðilsins gimaldid.is Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Félagasamtök Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar