Skoðun

Gilda lögin bara þegar okkur hentar?

Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar

Flest viljum við að börnin okkar finni eitthvað sem þau hafa áhuga á, njóti sín í námi og finni starf sem hentar þeim þegar fram í sækir. En hvað gerist þegar þau vita ekki hvað þau vilja? Þegar þau efast um eigin getu, finna sig ekki í skólanum eða sjá ekki tilganginn með því að halda áfram?

Stjórnvöld tala um mikilvægi þess að börn og ungmenni fái stuðning, að dregið verði úr brotthvarfi úr námi og að öll fái tækifæri til að nýta hæfileika sína. En eitt mikilvægt atriði fær ekki alltaf þá athygli sem það á skilið: aðgangur að náms- og starfsráðgjöf.

Nemendur í grunn- og framhaldsskólum eiga lögbundinn rétt á náms- og starfsráðgjöf. Samt þarf að spyrja hvort sá réttur sé tryggður í raun og veru. Því réttindi sem standa í lögum en eru ekki aðgengileg öllum eru ekki þau réttindi sem við ættum að sætta okkur við.

Þetta snýst ekki bara um að velja námsbraut eða ákveða hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór. Þetta snýst um að þekkja styrkleika sína, finna leiðir þegar á móti blæs og hafa einhvern til að leita til þegar framtíðin virðist óljós.

Við eigum sérfræðingana.

Náms- og starfsráðgjafar eru sérmenntað fagfólk sem styðja alla aldurshópa við að taka upplýstar ákvarðanir um nám og störf, takast á við hindranir og finna raunhæfar leiðir áfram. Starfsheitið er lögverndað, en það eitt og sér tryggir ekki að öll fái þá þjónustu sem lög gera ráð fyrir. Það þarf að fylgja réttindunum eftir í framkvæmd, með skýrri ábyrgð og raunhæfum forsendum til að veita þjónustuna.

Auðvitað eru áskoranir í rekstri skóla og opinberrar þjónustu þar sem mönnun og fjármagn setja stjórnendum skorður. En þá þarf að ræða hvernig tryggja eigi lögbundin réttindi, ekki láta þau verða undir í daglegum rekstri. Réttur barns til náms- og starfsráðgjafar á ekki að ráðast af því í hvaða skóla það gengur.

Þetta snýst líka um framtíð atvinnulífsins.

Störf breytast, ný færni verður mikilvæg og sífellt fleiri þurfa að endurmeta stöðu sína, bæta við sig þekkingu eða hefja nýtt nám á fullorðinsárum. Atvinnustefna Íslands til 2035 leggur áherslu á færniþróun og að menntun þróist í takt við þarfir framtíðarinnar. Til að ná þeim markmiðum þarf fólk stuðning til að finna sína leið, halda áfram þegar á móti blæs og bregðast við breytingum.

Náms- og starfsráðgjöf á því ekki aðeins erindi við börn og ungmenni. Hún er mikilvæg alla ævi. Tækni og gervigreind geta veitt upplýsingar um nám og störf, en þær koma ekki í stað faglegs samtals þar sem hlustað er, aðstæður metnar og styrkleikar dregnir fram.

Þess vegna þurfa náms- og starfsráðgjafar að koma að borðinu þegar stjórnvöld móta stefnu um menntun, ungmenni, færniþróun og framtíð vinnumarkaðarins. Ekki aðeins eftir að ákvarðanir hafa verið teknar, heldur frá upphafi.

Ég kalla eftir því að stjórnvöld tryggi að lögbundnum rétti nemenda sé fylgt eftir í framkvæmd og nýti sérþekkingu náms- og starfsráðgjafa markvisst í stefnumótun.

Við eigum sérfræðingana. Við höfum lögin. Nú er kominn tími til að fylgja þeim eftir. Þetta snýst um tækifæri fólks, framtíð barna okkar og samfélags sem vill að öll geti fundið sína leið.

Höfundur er formaður Félags náms- og starfsráðgjafa.




Skoðun

Sjá meira


×