Vestmannaeyjabær, þar sem þögn er þegjandi samkomulag Linda Rós Sigurdardóttir skrifar 28. maí 2026 14:36 Ég hef á síðustu vikum og mánuðum oft þurft að spyrja mig: Hvar á ég heima? Ekki vegna þess að ég viti ekki hvar ég búi, heldur skil ég ekki í hvers konar samfélagi ég er eiginlega stödd. Það er ekki svo að ég hafi hætt að elska Vestmannaeyjar. Þvert á móti þá elska ég Eyjar, bæinn minn og sveitarfélagið. Ég vann hjá Vestmannaeyjabæ árum saman, fyrst í íþróttamiðstöðinni og síðar á umhverfis- og framkvæmdasviði. Þar kynntist ég fólki sem margir eru mínir bestu vinir. Á þessum vinnustað við höfnina mættist fólk úr öllum hornum bæjarkerfisins; verkamenn, skrifstofufólk og stjórnendur. Það sem skipti máli var ekki staða, skoðun eða tengsl, heldur einfaldlega hvernig manneskja þú varst. Skoðun eða skipurit hafði ekki áhrif á samskiptin. Þarna virtust allir jafnir. Svo breyttist eitthvað. Ekki alveg á einum degi en smám saman, eftir einar kosningar, var andrúmsloftið annað. Svo virtist sem eðlileg samskipti og skoðanir væru ekki jafn vel liðnar og áður. Fólk fór að vanda orð sín meira, passa sig hvað það sagði, hvað það lækaði á samfélagsmiðlum og við hvern það talaði. Hiklaust voru starfsmenn teknir á teppið ef stjórnendum mislíkaði það sem fólk gerði, ekki endilega við störf heldur í frítíma sínum líka. Það var eins og nýju mörkin væru öllum ljós þó engar reglur hefðu verið settar. Þegar stjórnunin verður óttablendin og ný menning nær fótfestu þarf hvorki boð né bönn, því óttinn skapar þegjandi samkomulag um að þegja. Eitt sinn varð ég svo vitni að því hvernig talað var um annað starfsfólk á göngunum án þess að viðkomandi væri á staðnum til þess að verja eða svara fyrir sig. Sá hvernig stjórnendur leyfðu sér að ræða mál einstaklinga þannig að aðrir heyrðu og áttu að heyra. Þegar ég taldi sjálfsagt að láta viðkomandi vita, enda einfaldlega það rétta í stöðunni, urðu viðbrögð mín að vandamálinu. Ekki það sem sagt var heldur að ég skyldi dirfast að bregðast við gagnvart stjórnanda. Ég var sjálf kölluð til ábyrgðar. Þarna áttaði ég mig á því hvernig menningin virkaði. Ég fór að skilja að þetta snerist ekki bara um einstök atvik; þetta snerist um hvað mátti segja, hver mátti segja það og um hverja. Í nýju reglunum máttir þú ekki þekkja eða tengjast röngum aðilum eða þeim sem stjórnendum þóknaðist ekki. Tortryggni, rofið traust og tiltal máttu ýmsir dyggir starfsmenn sveitarfélagsins til margra ára, allt í einu þola. Vendipunkturinn. Ég hafði lengi beðið eftir breytingu á starfi mínu sem mér hafði um tíma verði tjáð að væri í farvatninu. Þegar ekkert gekk fór ég að skoða aðra starfsmöguleika. Auglýst var starf sem ég hafði áhuga á og tilkynnti ég það yfirmanni mínum. Hann bað mig að bíða og staldra við þar sem breytt staða væri væntanleg fyrir mig. Að lokum kom samningur sem ég skrifaði undir í góðri trú. Þar var um að ræða meiri ábyrgð, stærri verkefni og kjör sem mér þóttu í samræmi við það sem lagt var upp með. Fimm dögum síðar var mér hins vegar tilkynnt að samningurinn hefði verið gerður fyrir mistök. Kjörin sem áður höfðu verið samþykkt voru dregin til baka og eftir stóð staða sem var óljós og allt önnur en mér hafði verið talin trú um. Því var síðar haldið fram að réttir verkferlar bæjarins hefðu ekki verið virtir (en ferlar í ráðningum þessa sveitarfélags eru efni í skrif út af fyrir sig) og að óvissa ríkti nú innan stjórnsýslunnar um hvernig staðið hefði verið að fyrirhugaðri tilfærslu minni í starfi. Niðurstaðan varð þá á endanum mjög skýr fyrir mig: ég átti ekki lengur að vera þarna. Ég fór. Það sem situr þó þyngst á mér er ekki hvernig þetta fór innan þessa vinnustaðar heldur það sem síðar gerðist. Hvernig þessi (ó)menning elti mig á nýjan, allt annan, vinnustað. Nýlega fékk ég svo upplýsingar um að samtal hafi átt sér stað á milli yfirstjórnanda sveitarfélagsins og nýs vinnuveitanda minn, þar sem pólitískar skoðanir mínar og eðlileg þátttaka mín fyrir hönd minnihlutaflokks í sveitarstjórnarkosningum voru meðal annars til umræðu. Óþarft er að rengja endursögn þessa tveggja manna tals enda er orðspor afskipta löngu áunnið. Í bæ þar sem skoðanir eða samskipti þurfa alls ekki að vera róttæk til að hljóta megi skammir. Mér finnst það alvarlegt ef æðsti yfirmaður sveitarfélagsins, sem ég bý, í leggur sig fram um að skaða mig á nýjum vinnustað eftir að hafa hrakið mig frá þeim fyrri. Þarna hætti þetta að snúast um vinnu og snýst fyrst og fremst um vald. Skemmst er frá því að segja að starf mitt þar fór fyrir bí. Upplifun eða ógnarstjórn. Þetta er saga af óskýrum línum um vinnu og einkalíf, um fagmennsku og skoðanir, um hollustu og frelsi, og hvernig slíkt ætti allt að geta þrifist í litlu samfélagi án afskipta. Þetta er saga um hvernig ég lærði smám saman að þögnin var öruggari en hreinskilnin. Það sem hér hefur verið ritað er ekki bara mín saga eða upplifun, því ég er ekki ein. Ég veit líka að margir vilja ekki stíga fram. Í litlu samfélagi er það skiljanlegt. Tengslin eru mikil, tækifærin fá og afleiðingarnar eru raunverulegar þar sem miklu er að tapa. Það alvarlegasta við slíka menningu er ekki ógnin heldur þögnin sem henni fylgir. En það breytir því ekki að þessi umræða á fullt erindi við almenning og hún er til staðar; á kaffistofunni, í kjaftaklúbbum og í rauðglóandi messenger skilaboðum eftir að ég hratt umræðunni af stað. Sveitarfélagi á ekki að vera stýrt með þeim hætti að fólk upplifi að skoðanir þess geti haft áhrif á starfsöryggi eða stöðu. Það er alvarlegt þegar starfsfólk eða óbreyttir íbúar upplifa að skoðanir, tengsl eða það eitt að standa með öðrum geti haft neikvæð áhrif (og héðan hefur fólk beinlínis flúið). Það á aldrei að vera eðlilegt að fólk velti því fyrir sér hvort þögn sé hið eðlilega þegjandi samkomulag til þess að fá að vera með. Og það er alvarlegast af öllu að búa í samfélagi sem hefur í nokkur ár vanist því að heyra margar svona sögur sem enginn þorir að segja upphátt. Þess vegna spyr ég: Hvar á ég eiginlega heima? Höfundur er fyrrverandi starfsmaður Vestmannaeyjabæjar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vestmannaeyjar Mest lesið Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun