Verðandi faðir dó í sprengingu við undirbúning hverskynsveislu Samúel Karl Ólason skrifar 23. febrúar 2021 10:06 Ástæða sprengingarinnar liggur ekki fyrir enn, né hvað mennirnir voru að smíða, annað en einhverskonar pípu. Getty/Larry W. Smith Bandarískur maður sem átti von á sínu fyrsta barni dó á sunnudaginn. Þá var hann að smíða sérstakan búnað til að nota við athöfn þar sem hann og kona hans ætluðu að opinbera kyn barns þeirra, í svokallaðri hverskynsveislu.
Búnaðurinn sprakk og bróðir manns slasaðist einnig. Lögregluþjónar voru kallaðir til vegna sprengingarinnar og komu þeir að Christopher Pekny, sem var 28 ára gamall, látnum. Michael bróðir hans, sem er 27 ára gamall, slasaðist, samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni. New York Times segir ekki liggja fyrir nákvæmlega hvað olli sprengingunni. Búnaðurinn sem hafi sprungið hafi verið einhvers konar pípa sem nota átti í áðurnefndri athöfn. Peter Pekny, eldri bróðir Christopher og Michael segir þá báða hafa verið góða í því að gera við hluti og þeir hafi mikið dundað sér við það. Hann sagðist ekki vita hvað olli sprengingunni. Þessar hverskynsveislur hafa verið mikið milli tannanna á fólki undanfarin ár. Dauðsföll og stórir skógar- og gróðureldar hafa verið raktir til þeirra. Minnst tveir hafa dáið frá 2019 og sá síðasti í Michigan í þessum mánuði. Hann dó þegar hann varð fyrir braki úr lítilli fallbyssu sem notuð var til að opinbera kyn barns fólks. Sá var gestur á athöfninni og var 26 ára gamall.
Bandaríkin Mest lesið Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Erlent Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Tilkynnt um helst til ungan ökumann Innlent Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Erlent Ísraelar ráðast í umfangsmiklar loftárásir og hvetja íbúa til að flýja Erlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Innlent Fleiri fréttir Fjórir myrtir og fjöldi særður eftir skotárás í Alabama Ísraelar ráðast í umfangsmiklar loftárásir og hvetja íbúa til að flýja Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Sjá meira