Gaf Hildi tvö olnbogaskot á innan við mínútu og var rekin út úr húsi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. febrúar 2021 09:31 Nikita Telesford sést hér í leik með Skallagrími en á skjámyndinni til vinstri má sjá hana vera búin að gefa Hildi Björg Kjartansdóttur olnbogaskot. Vísir/Samsett/Vilhelm/S2 Sport Olnboganir flugu í leik Skallagríms og Vals í kvennakörfunni í gær. Hér má sjá þegar íslenski landsliðsmiðherjinn fékk að finna fyrir því í Fjósinu.
Nikita Telesford og Hildur Björg Kjartansdóttir kláruðu hvorugar leik Skallagríms og Vals í Domino´s deildinni í körfubolta í gær. Hildur fór meidd af velli eftir olnboga Telesford sem var aftur á móti rekin út úr húsi fyrir olnbogaskotið. Telesford var uppvís að því að gefa íslenska landsliðsmiðherjum tvö olnbogaskot með stuttu millibili í fjórða leikhluta í Borgarnesi í gær og dómarar leiksins ráku hana út úr húsi fyrir það síðara. Klippa: Olnbogaskot Nikitu Telesford Nikita og Hildur Björg höfðu barist hart undir körfunum allan leikinn og héldu hvorri annarri niðri í stigaskorinu enda fór orkan kannski í annað. Báðar skoruðu þær aðeins fjögur stig en Hildur tók átta fleiri fráköst. Í fjórða leikhluta var Valsliðið að sigla sigrinum heim þegar Nikita Telesford fór að láta olnbogana fljúga. Hildur fékk þannig tvö olnbogaskot frá henni á aðeins nokkrum sekúndum. Fyrri olnbogaskotið kom þegar Nikita Telesford var að stíga út Hildi í vítaskoti Helenu Sverrisdóttur en hið síðara þegar þær voru að berjast um stöðu í teignum hinum megin á vellinum. Hildur kvartaði undan því fyrra en steinlá eftir að síðara. Hér fyrir ofan má sjá þessi tvö olnbogaskot. Það má búast við því að Nikita Telesford eigi höfði sér leikbann fyrir þessa hegðun sín í Fjósinu í gær.
Dominos-deild kvenna Skallagrímur Valur Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira