Innlent

Kláraði stúdentinn á tveimur árum í fjarnámi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Birta Breiðdal með stúdentshúfuna en með henni á myndinni er Steinunn Hafstað fjarnámsstjóri FÁ.
Birta Breiðdal með stúdentshúfuna en með henni á myndinni er Steinunn Hafstað fjarnámsstjóri FÁ.

Hin átján ára gamla Birta Breiðdal getur farið brosandi inn í jólahátíðina. Hún skráði sig í sögubækurnar á föstudaginn þegar hún lauk stúdentsprófi við Fjölbrautarskólann í Ármúla. Hún er fyrsti nemandinn sem útskrifast við skólann sen stundaði námið alfarið í fjarnámi. Lauk hún auk þess stúdentsprófi á aðeins tveimur árum.

Brautskráning Fjölbrautaskólans við Ármúla fór fram á föstudag og stýrði Magnús Ingvason skólameistari athöfninni. Brautskráðir voru 107 nemendur af 13 námsbrautum, 21 nemendur útskrifuðust af heilbrigðissviði, sem skiptust svo eftir námsbrautum: tíu útskrifuðust sem heilsunuddarar, einn sem heilbrigðisritari, einn sem læknaritari, tveir sem lyfjatæknar og sex sem sjúkraliðar og einn sem tanntæknir.

Frá nýsköpunar og listabraut útskrifuðust fjórir nemendur og stúdentar voru 88. 35 útskrifuðust af félagsfræðibraut, af náttúrufræðibraut útskrifuðust nítján, af hugvísinda- og málabraut 1, af viðskipta- og hagfræðibraut útskrifuðust níu og sex með viðbótarnám til stúdentsprófs að loknu starfsnámi.

Eyþór Guðjónsson, nemandi á náttúrufræðibraut, og Edda Sól Arthúrsdóttir, nemandi á félagsfræðabraut, voru dúxar skólans með 9,38 í meðaleinkunn. Með þeim á myndinni eru Kristrún Birgisdóttir aðstoðarskólameistari og Magnús Ingvason skólameistari.

Dúxar skólans voru tveir á haustönn 2020 en þau voru með sömu meðaleinkunn. Þau Eyþór Guðjónsson sem útskrifaðist af náttúrufræðibraut með meðaleinkunnina 9,38 og Edda Sól Arthúrsdóttir sem útskrifaðist af félagsfræðabraut með meðaleinkunnina 9,38

Kveðjuávarp nýstúdents flutti Garðar Árni Garðarsson af félagsfræðabraut og kveðjuávarp útsskriftarnema Heilbrigðisskólans flutti Ragnar Ingi Axelsson. Tónlistarflutningur var jólakveðja starfsfólks FÁ og píanóleikari við athöfnina var Sunna Karen Einarsdóttir.

Í ávarpi við skólaslit nefndi Magnús Ingvason, skólameistari að komandi jól og áramót verði vafalaust frábrugðin öllum þeim jólum og áramótum sem við höfum lifað. Þau þurfi þó alls ekki að vera síðri – bara öðruvísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×