Fótbolti

Leikur Dortmund og PSG fer fram fyrir luktum dyrum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Úr fyrri leik Dortmund og PSG sem þýska liðið vann, 2-1.
Úr fyrri leik Dortmund og PSG sem þýska liðið vann, 2-1. vísir/getty
Seinni leikur Paris Saint-Germain og Borussia Dortmund í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á miðvikudagskvöldið verður leikinn fyrir luktum dyrum.

Lögreglan í París hefur staðfest að engir áhorfendur verði á Parc des Princes, heimavelli PSG, á miðvikudaginn vegna ótta við kórónuveirunnar.

Þetta verður fyrsti leikurinn í Meistaradeildinni í vetur sem verður leikinn fyrir luktum dyrum.

Leikir í ítölsku úrvalsdeildinni hafa farið fram á tómum leikvöngum og þá fór leikur Inter og Ludogorets í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar fram fyrir luktum dyrum.

Leikur PSG og Dortmund hefst klukkan 20:00 á miðvikudagskvöldið. Dortmund vann fyrri leikinn með tveimur mörkum gegn einu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×