Ógnaði starfsfólki með hnífi og stal flöskum Samúel Karl Ólason skrifar 28. júní 2020 08:31 Lögreglan í miðbæ Reykjavíkur. Vísir/Kolbeinn Tumi
Lögreglan handtók í nótt mann sem grunaður er um að hafa farið inn á tvo vínveitingastaði og hótað þar starfsfólki með hnífi og stolið áfengisflöskum. Í heildina virðist hafa verið nóg að gera hjá lögregluþjónum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Í dagbók lögreglunnar segir að tilkynning um líkamsárás hafi borist um klukkan sex í gær. Sá sem fyrir árásinni varð var bólginn í andliti og með brotna tönn. Hann var þar að auki mjög ölvaður og var ekki hægt að fá framburð frá honum vegna árásarinnar. Farið var með hann á bráðadeild en árásarmaðurinn var farinn af vettvangi. Þá var einnig tilkynnt um líkamsárás við veitingahús í Hafnarfirði. Þar var kona slegin í andlitið en gerandi var farinn af vettvangi þegar lögregluþjóna bar að garði. Konan var færð á Bráðadeild til aðhlynningar. Lögregluþjónar stöðvuðu ökumann á Skúlagötu á sjötta tímanum í gær. Sá er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og hefur hann ítrekað verið gómaður í umferðinni, án þess að vera með ökuréttindi. Minnst tveir aðrir ökumenn sem einnig eru grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna voru stöðvaðir í nótt. Báðir þeirra hafa ítrekað verið teknir í akstri án réttinda. Annar þeirra var þar að auki á ótryggðum bíl.
Lögreglumál Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira