Skoðun

Hvers virði er geðheilbrigði barna?

Ragnheiður Lára Guðrúnardóttir skrifar

Var andvaka í nótt. Uppspennt og á síðustu hálmstráum andlegrar heilsu nú á fjórðu, fimmtu (?) viku verkfalls (líður eins og það séu sjö mánuðir). Verkfallið er svo sannarlega farið að taka sinn toll af líðan miðjubarnsins sem tekur nú regluleg spennulosunar grátköst og sýnir erfiða hegðun. Við foreldrarnir erum að verða búnir með kvótann af skipulagssamtölum um hver eigi að sækja hvenær, hvar og hvern.

En það var svo sem ekki það sem hélt mér andvaka í nótt heldur það að nú í næstu viku hefst verkfall á ungbarnaleikskólanum hjá yngsta drengnum. Ungbarnaleikskóla þar sem börnin eru á aldrinum níu mánaða til tveggja ára. Það verða bæði dagar sem hann getur ekki farið á leikskólann en það sem verra er að hann og öll hin litlu börnin fá ekki hádegismat svo foreldrar þurfa að sækja börnin klukkan 11:00, gefa þeim hádegismat fyrir utan leikskólann og skila aftur fyrir hvíld.

Ég veit ýmislegt um þroskaferli og tengslamyndun ungra barna og ég þekki gleðibrosin á andlitum þeirra þegar mamma og pabbi koma og sækja á leikskólann í lok dags. Ætlum við í alvörunni að setja eins árs gömul börn í þá stöðu að þurfa að kveðja mömmu og pabba í tvígang yfir daginn?

Hvenær geta þau verið viss um að það sé raunverulega verið að sækja þau eftir daginn en ekki bara til að gefa þeim mat og svo fara þau AFTUR á leikskólann að hvíla sig. Hvernig ástand á eftir að myndast í hádeginu á leikskólanum? Þvílík ringulreið sem það verður af örþreyttum smábörnum sem héldu að þau væru að fara heim en ekki aftur á leikskólann að sofa.

Eins árs gömul börn hafa flest ekki færni til að skilja og átta sig á þessu fyrirkomulagi. Það mun koma til með að valda óöryggi bæði í garð foreldra og leikskóla. Það mun koma til með að valda langvarandi neikvæðum afleiðingum á aðlögun barnsins í leikskólanum. Það mun koma til með að valda streitu og mjög líklega hafa neikvæð áhrif á hádegissvefn þeirra.

Ég er svo sár fyrir hönd þessarar litlu kríla sem eru á mikilvægasta mótunarskeiði sínu. Eru á mikilvægasta aldri í mótun geðtengsla og því er öllu kastað fyrir borð á grundvelli verkfalls. Er verið að taka óþarfa sénsa á geðheilbrigði ungabarna?

Er ekki spurning um að veita undanþágu vegna verkfallsins líkt og er gert í annarri viðkvæmri starfsemi (s.s. vistunarúrræði barnaverndar) og hlífa þessum litlu einstaklingum?

Nú eða semja!

Höfundur er þriggja barna móðir og félagsráðgjafi Tveggja heimila.




Skoðun

Sjá meira


×