Rauð jól í Manchester Arnar Geir Halldórsson skrifar 7. desember 2019 19:30 Montrétturinn er United manna næstu vikurnar vísir/getty Stórleikur umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni olli engum vonbrigðum þegar nágrannarnir Manchester United og Manchester City mættust á Etihad leikvangnum í kvöld. Leikurinn var gríðarlega hraður í fyrri hálfleik og voru bæði lið að ógna reglulega. Það voru hins vegar gestirnir sem náðu forystunni með marki úr vítaspyrnu. Bernardo Silva braut þá klaufalega á Marcus Rashford innan vítateigs og eftir að hafa notið aðstoðar VAR benti Anthony Taylor, dómari leiksins, á vítapunktinn. Rashford skoraði örugglega úr vítaspyrnunni og skömmu síðar hafði Anthony Martial tvöfaldað forystuna. Man Utd fór því með tveggja marka forystu í leikhléið. Heimamenn herjuðu á gestina í síðari hálfleiknum og fundu loks leið framhjá þéttum varnarmúr Man Utd á 85.mínútu þegar varamaðurinn Nicolas Otamendi skoraði. Þrátt fyrir þunga pressu á lokamínútunum tókst Man City ekki að finna jöfnunarmarkið og lokatölur 1-2 fyrir Man Utd sem lyftir sér þar með upp í 5.sæti deildarinnar. Englandsmeistararnir geta hins vegar endanlega kvatt titilvonir sínar þar sem þeir eru í 3.sæti og eru nú fjórtán stigum á eftir óstöðvandi liði Liverpool. Enski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti