Greinin ber titilinn The Prioritization of Island Nations as Refuges from Extreme Pandemics sem þýða mætti á íslensku sem Forgangsröðun eyríkja sem athvörf frá alvarlegum heimsfaröldrum. Greinin birtist í fræðitímarítinu Risk Analysis sem fjallar um áhættugreiningu.
Höfundar greinarinnar eru dr. Matt Boyd hjá Adapt Research, nýsjálensku rannsóknarfyrirtæki, og Nick Wilson, prófessor í lýðheilsufræði við Otago-háskóla í Nýja-Sjálandi.
Er það mat höfunda greinarinnar að jafn vel þótt ólíklegt sé að heimsfaraldur geti ógnað framtíð alls mannkyns fari líkurnar engu að síður vaxandi með aukinni þróun í líftækni og af ýmsum öðrum ástæðum sem tíundaðar eru í greininni. Þannig geti mannkynið á einhverjum tímapunkti í framtíðinni staðið frammi fyrir útrýmingu af völdum heimsfaraldurs af óþekktri stærðargráðu.
Og hvað er þá til ráða?
Svarið sem fræðimennirnir tveir leggja til er að skoða hvort koma ætti auga á svokölluð athvörf, eyríki sem hægt væri að einangra komi til alvarlegs heimsfaraldurs sem ógnað gæti framtíð mannkyns. Markmið greinarinnar var því að bera kennsl á þau eyríki sem hentað gætu best til þess að þjóna sem slík athvörf. Hugmyndin er sú að að þannig sé hægt að varðveita hugmyndir og þekkingu auk þess sem að í versta falli geti mannkynið fjölgað sér og dreift sér þaðan um heiminn á nýjan leik eftir að faraldurinn gengur niður.
Réðust höfundar í greiningu á fyrri rannsóknum sem fjalla um hvaða eiginleika hin svokölluðu athvörf þurfa að búa yfir komi til alvarlegs heimsfaraldurs. Kemur fram í greininni að úr þeim megi greina fjögur lykilatriði sem líta þurfi til þegar metið er hvort að tiltekið eyríki geti talist hentugt eða ekki. Fólksfjöldi, staðsetning, náttúruauðlindir og samsetning samfélagsins.
Úr þessum fjórum flokkum sköpuðu höfundarnir níu lykilbreytur sem notaðar voru til þess að meta hvaða eyríki hentaði best, svo sem matvælaframleiðsla á ári hverju, fjarlægð frá öðru ríki, íbúafjöldi, og landsframleiðsla svo dæmi séu tekin.

Nefna höfundar sérstaklega ef hægt væri að finna leiðir til að auka matvælaframleiðslu á Íslandi væri vel líklegt að Ísland væri efst á blaði.
Og hvað þýðir þetta?
Ekkert sérstaklega mikið þar sem aðeins er um að ræða hugarleikfimi höfundanna tveggja. Í niðurlagi greinarinnar nefna þeir þó að rannsóknin gæti verið fyrsta skrefið í átt að því að koma auga á hvað þurfi að gera, verði ákveðið að útnefna ákveðið eyríki sem athvarf vegna mögulegs alvarlegs heimsfaraldurs.Þannig sé undirbúningur lykilatriði og verði ákveðið að útnefna sérstök athvörf geti rannsóknin verið fyrsta skrefið í því að útiloka eyríki sem ekki þyki hentug, og þau eyríki sem teljist hentug geti hafið undirbúning.
Í viðtali viðNew Zealand Heraldsegir Nick Wilson, annar höfunda greinarinnar að líkja megi því að velja ákveðið eyríki sem athvarf við það að kaupa sér tryggingar.
„Maður vonar að maður þurfi ekki að nota þær en ef hið hræðilega gerist þá er mikilvægt að hafa einhverja áætlun til staðar um hvað skuli gera,“ sagði Wilson.
Lesa má umrædda grein hér.