Sirhan Sirhan stunginn í steininum Andri Eysteinsson skrifar 31. ágúst 2019 09:44 Sirhan Sirhan á leið til réttarhaldana yfir sér árið 1968. Getty/Rollspress
Sirhan Sirhan, maðurinn sem myrti forsetaframbjóðandann Robert Kennedy árið 1968 og hefur setið inni síðan, hefur verið fluttur á sjúkrahús eftir að hafa verið stunginn af samfanga sínum. Í yfirlýsingu frá fangelsismálayfirvöldum Kaliforníu, þar sem Sirhan situr inni, segir að fangi hafi verið stunginn, fangaverðir hafi brugðist skjótt við og að líðan fangans sé stöðug. Ekki var greint frá nafni fangans en heimildir AP greina að um sé að ræða Sirhan. Vitað er hver árásarmaðurinn er og hefur hann að sögn verið færður í einangrun.Sirhan Sirhan var sakfelldur fyrir morðið á forsetaframbjóðandanum Robert F. Kennedy, bróður fyrrverandi Bandaríkjaforseta John F. Kennedy, árið 1968. Robert Kennedy hafði þá stuttu áður lýst yfir sigri í forvali demókrataflokksins í Kalíforníu á stuðningsfundi hans á Ambassador hótelinu í Los Angeles.Sirhan skaut Kennedy af stuttu færi til bana og kenndi stuðningi Kennedy við Ísrael þar um en Sirhan var fæddur og uppalinn í Palestínu. Var hann dæmdur til dauða en eftir afnám dauðarefsingar var refsingu hans breytt í lífstíðarfangelsi.Robert Francis Kennedy, rétt áður en hann var myrtur af Sirhan Sirhan.Getty/Bill Eppridge
Bandaríkin Mest lesið Eldar brenna stjórnlaust um alla Los Angeles Erlent Græna gímaldið við Álfabakka: Hvernig gat þetta gerst? Innlent Líklega búi meira að baki hugmyndum Trumps Innlent Titringur á Alþingi Innlent Banna fjölmiðlum að nota full nöfn og myndir af hermönnum Erlent Forstjóri OpenAI sakaður um áralangt ofbeldi gegn systur sinni Erlent Fékk krampa og drapst vegna fuglaflensu Innlent Lagðist með hendur fyrir aftan bak eftir að hafa stungið mann Innlent Handtekinn grunaður um líkamsárás, eignaspjöll og fjársvik Innlent Fólk boðað í sýnatökur vegna fuglaflensu Innlent Fleiri fréttir Banna fjölmiðlum að nota full nöfn og myndir af hermönnum Eldar brenna stjórnlaust um alla Los Angeles Forstjóri OpenAI sakaður um áralangt ofbeldi gegn systur sinni Mette boðar flokksformenn á neyðarfund vegna Grænlands Stjórnlausum eldum fjölgar í LA ESB sektað fyrir að brjóta eigin persónuverndarlög Af hverju langar Trump í Grænland? Leita nýrra leiða til að sækja sýni til Mars Kyrrsetja skuggaskipið vegna slæms ástands Ætlar að hitta kónginn í dag Belgar varaðir við því að borða jólatrén Hætta staðreyndavöktun á Facebook og Instagram Eldar loga í LA og neyðarástandi lýst yfir Útilokar ekki að beita hervaldi til að ná Grænlandi Ummæli um vanþakklæti Afríkubúa valda reiði Danir ekki í rónni með Grænlandsheimsókn Trumps yngri Le Pen látinn Símar framhaldskólanema læstir inni í skáp Trump-liðar vilja stöðva birtingu skýrslu Smiths Aldrei færri fangar í Guantánamo-fangelsinu Enn segjast menn vongóðir um vopnahlé á Gasa Tugir látnir eftir stóran skjálfta í Tíbet Trump yngri á leið til Grænlands Trudeau segir af sér Byrjuðu strax að endurskrifa sögu árásarinnar Minkarækt hafin að nýju eftir að milljónum var lógað Hafa tekið nokkur þorp í Kúrsk Sjötta fórnarlamb árásarinnar í Magdeburg látið Afsögn Trudeau sögð yfirvofandi Biðtíminn í umferðinni hvergi lengri en í Lundúnum Sjá meira