„Þetta er í skoðun og allra nauðsynlegra viðbragða að vænta innan skamms,“ segir Gísli Kr. Björnsson, stjórnandi og eigandi Almennrar innheimtu, um yfirlýsingu sem Neytendasamtökin sendu frá sér í gær. Hann vildi ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu.
Þar segir að til félagsins streymi enn ábendingar og fyrirspurnir frá fólki sem tekið hafi smálán sem séu í innheimtu hjá Almennri innheimtu. Fólk sé enn krafið um greiðslur ólögmætra vaxta og hás vanskilakostnaðar, þvert á fyrri fullyrðingar Gísla.
Í tilkynningunni segir að samtökin standi ráðþrota gagnvart þessu framferði og muni ekki eftir jafn svínslegum viðskiptaháttum. Þá hafi erindi til Lögmannafélagsins vegna framferðis Gísla verið vísað frá vegna aðildarskorts.
Því hvetja Neytendasamtökin þá sem tekið hafa smálán eftir 2013 sem séu í innheimtu hjá Almennri innheimtu að senda erindi og biðja um sundurliðun krafna. Sé ekki orðið við þeirri beiðni er fólk hvatt til að senda Lögmannafélaginu erindi.
