Svíar mæta Þjóðverjum í 8-liða úrslitum á HM kvenna eftir sigur á Kanada í 16-liða úrslitunum í kvöld.
Fyrri hálfleikur var nokkuð bragðdaufur í París í kvöld en á 55. mínútu skoraði Stina Blackstenius opnunarmark leiksins fyrir Svía. Markið kom úr fyrsta skoti leiksins sem rataði á markrammann.
Kanadísku stúlkurnar fengu upplagt tækifæri til þess að jafna metin þegar þær fengu vítaspyrnu en Hedvig Lindahl varði frá Janine Beckie.
Annars ógnaði kanadíska liðið lítið sem ekkert í leiknum og Svíar unnu að lokum 1-0 sigur.
Svíar slógu Kanada úr leik
