Flug á Gatwick gæti raskast í marga daga vegna drónanna Kjartan Kjartansson skrifar 20. desember 2018 16:23 Um 110.000 manns áttu bókaða ferð til eða frá Gatwick í dag. Þúsundir hafa setið fastar í flugstöðvarbyggingunum. Vísir/EPA
Breska lögreglan leitar enn að þeim sem bera ábyrgð á drónum sem flogið hefur verið yfir Gatwick-flugvöll og stöðvað flugumferð frá því í gærkvöldi. Tugir þúsunda farþega hafa orðið fyrir töfum og raskanir gætu orðið á flugvellinum í marga daga á eftir. Umferð um Gatwick var fyrst stöðvuð í gærkvöldi eftir að drónar sáust þar á sveimi. Flygildin hafa ítrekað sést yfir flugvellinum síðan og hefur öll umferð legið niðri þar í dag. Lögreglan í Sussex telur ekki að uppákoman tengist hryðjuverkastarfsemi en að flugumferðinni hafi verið raskað vísvitandi. Varnarmálaráðherra Bretlands tilkynnti nú síðdegis að herinn yrði kallaður til aðstoðar lögreglu. Lögreglan hefur ekki viljað skjóta drónana niður af ótta við hættuna á voðaskotum. Ráðherrann tók ekki fram hvar herinn gæti eða myndi aðhafast, að sögn The Guardian. Framkvæmdastjóri Gatwick-flugvallar segir að þegar hægt verður að hleypa umferð á aftur verði fyrst reynt að koma farþegum sem nú bíða áfram. Það gæti tekið nokkra daga. Allt að fimm ára fangelsi liggur við því að trufla flugsamgöngur með þessum hætti, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC.
Bretland Fréttir af flugi Tengdar fréttir Miklar raskanir á flugi frá Gatwick vegna dróna Miklar raskanir hafa orðið á flugi frá Gatwick flugvelli eftir að drónar sáust á flugi í grennd við völlinn. 20. desember 2018 07:22 Mest lesið Björk styður æskuvinkonu sína sem sætir svívirðingum Innlent Magga Stína handtekin í nótt af Ísraelsher Innlent Bein útsending: Mótmæla handtöku Möggu Stínu Innlent Langþreyttur á TikTok áreiti og rasískum orðsendingum skólakrakka Innlent Óheppileg „læk“ Reykjavíkurborgar: „Okkur þykir þetta miður“ Innlent Hefur áhyggjur af unga fólkinu Innlent Hitnar undir feldi Lilju Innlent Dularfull brotlending nærri Area 51 Erlent Keyrt á vegfaranda í Skeifunni Innlent Átján sagt upp í Seljahlíð Innlent Fleiri fréttir Fá Nóbelsverðlaun fyrir þróun málmlífrænna grinda Tengdasonur Trumps mætir til Egyptalands Dularfull brotlending nærri Area 51 Trump og „maðurinn með ljáinn“ hóta að greiða ekki laun Engan óraði fyrir framhaldinu Súdanskur uppreisnarleiðtogi sakfelldur fyrir stríðsglæpi Nýkjörinn bæjarstjóri alvarlega særður eftir stunguárás Fá Nóbelinn fyrir rannsóknir sínar á sviði skammtafræði Tvö ár liðin frá árásum Hamas á Ísrael Vill vita hvað Úkraínumenn vilja gera við bandarískar stýriflaugar Hæstiréttur hafnar Maxwell Stofna rannsóknarnefnd um Afganistan sem Íslendingar kölluðu eftir Gretu Thunberg og félögum vísað úr landi Gisèle Pelicot aftur í réttarsal Fá Nóbelinn fyrir ónæmisrannsóknir sínar Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Forsætisráðherra Frakklands segir af sér Viðræður um frið á Gasa hefjast í dag Nýskipaðri ríkisstjórn þegar hótað vantrausti Stórtap Air Greenland vegna aflýstra flugferða til Nuuk Tæplega þúsund manns innlyksa á Everest Látinn eftir skotárás í Kaupmannahöfn Sögð vafin í ísraelska fánann og veifað um eins og verðlaunagrip Fjögurra manna fjölskylda meðal látinna Sendir þjóðvarðliðið til Chicago Segja stutt í samkomulag en sprengjum rignir enn Skoðanabróðir Orbans og Fico vinnur kosningar í Tékklandi Þrjátíu særðust í drónaárás á farþegalest Fjöldi án rafmagns vegna vonskuveðurs í Noregi Þrettán ára grunaður um aðild að skotárás Sjá meira
Miklar raskanir á flugi frá Gatwick vegna dróna Miklar raskanir hafa orðið á flugi frá Gatwick flugvelli eftir að drónar sáust á flugi í grennd við völlinn. 20. desember 2018 07:22