Fjórði leikur United í röð án sigurs Anton Ingi Leifsson skrifar 2. október 2018 21:00 Úr leiknum í kvöld. vísir/getty Ekkert mark var skorað í leik Manchester United og Valencia í Meistaradeild Evrópu en leikið var á Old Trafford í kvöld. Það er því ljóst að vandræði United halda áfram. Liðið skapaði sér lítið af færum í kvöld og besta færið fékk Romelu Lukaku í síðari hálfleik en skot hans var varið. Marcus Rashford átti svo gott skot í slá í síðari hálfleik úr aukaspyrnu úr þröngu færi en Valencia átti fá sem engin færi. Lokatölur því markalaust jafntefli. United er því með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina í riðlinum en Juventus er á toppnum með sex stig. Valencia er með eitt stig eftir tap gegn Juventus í fyrstu umferðinni. United fær stórleik í næstu umferð Meistaradeildarinnar en þeir spila gegn Juventus á heimavelli eftir þrjár vikur. Meistaradeild Evrópu
Uppgjörið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann
Uppgjörið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn