Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Íslandsmeistarar Víkings eru komnir áfram í aðra umferð undankeppni Meistaradeildarinnar í fótbolta eftir að hafa slegið út ungversku meistarana í FGyör í Ungverjalandi í kvöld. Fótbolti 14.7.2026 20:17
Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Víkingur og Györ ETO skildu jöfn, 2-2, þegar liðin áttust við í seinni leik sínum í fyrstu umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta karla yfra í kvöld. Víkingur hafði betur í fyrri leik liðanna í Fossvoginum og er þar af leiðandi kominn áfram í næstu umferð forkeppninnar. Fótbolti 14.7.2026 16:15
Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Mark Nikolajs Hansen á annarri mínútu uppbótartíma tryggði Íslandsmeisturum Víkings sigur á Ungverjalandsmeisturum Györ í fyrri leik liðanna í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Lykilmaður Víkings varð fyrir meiðslum í leiknum. Fótbolti 8.7.2026 12:31
Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Fótbolti 7.7.2026 18:17
Ísraelskt lið bíður Víkinga Ísraelsmeistarar Hapoel Be'er Sheva bíða Íslandsmeistara Víkings í 2. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta, komist Víkingar þangað. Fótbolti 17. júní 2026 10:24
Óheppnir Víkingar mæta ungversku meisturunum Íslandsmeistarar Víkings höfðu ekki heppnina með sér þegar dregið var í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í dag. Fótbolti 16. júní 2026 14:37
Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Norska fótboltafélagið Bodö/Glimt sópaði til sín 497 milljónum norskra króna með velgengni sinni í Evrópukeppnum á síðasta ári. Það leiddi til gríðarlegrar tekjuaukningar upp á 125 prósent samanborið við árið áður. Fótbolti 2. júní 2026 13:00
Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Arsenal-menn fögnuðu Englandsmeistaratitli sínum með stuðningsmönnum í skrúðgöngu um Islington-hverfið í Norður-London á sunnudaginn. Enski boltinn 2. júní 2026 07:01
Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Þrátt fyrir nístingssárt tap í vítaspyrnukeppni gegn PSG í gærkvöld, í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu, þá hafa Arsenal-menn ærna ástæðu til að fagna eftir afar vel heppnað keppnistímabil. Leikmenn óku um Norður-London í dag í opinni meistararútu og fögnuðu með aðdáendum. Enski boltinn 31. maí 2026 14:34
Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Rússneski markvörðurinn Matvey Safonov varð Evrópumeistari með PSG í gærkvöld en það er kannski ekki hægt að segja að hann hafi átt mikinn þátt í sigrinum gegn Arsenal í úrslitaleiknum. Fótbolti 31. maí 2026 11:05
Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG Lögreglan í París handtók um 280 manns í gærkvöldi í átökum í París eftir sigur PSG gegn Arsenal í Meistaradeildinni. Um tuttugu þúsund manns söfnuðust saman á Champs-Elysées. Erlent 31. maí 2026 07:44
„Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Mikel Arteta segist hafa verið meðvitaður um að ef úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni í kvöld, í úrslitaleik PSG og Arsenal í Meistaradeild Evrópu, þá yrðu helstu vítaskyttur Arsenal farnar af velli. Fótbolti 30. maí 2026 21:45
Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG PSG varð Evrópumeistari annað árið í röð í kvöld en tæpara gat það vart staðið. Úrslitin réðust í fimmtu umferð vítaspyrnukeppni og má sjá hana og mörkin úr venjulegum leiktíma á Vísi. Fótbolti 30. maí 2026 20:34
PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Franska stórveldið PSG varð í kvöld Evrópumeistari annað árið í röð með sigri á Arsenal í úrslitaleik í Búdapest. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni þar sem miðvörðurinn Gabriel skaut yfir úr fimmtu spyrnu Arsenal-manna. Fótbolti 30. maí 2026 14:32
Timber klár í slaginn Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, sagði á blaðamannafundi að Jurrien Timber verði klár fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld. Hann er mikilvægur hlekkur í stöðu hægri bakvarðar Arsenal. Fótbolti 30. maí 2026 11:33
Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Arsene Wenger treystir því að sinn gamli lærisveinn, Mikel Arteta, verði fyrsti þjálfarinn til að stýra Arsenal til sigurs í Meistaradeild Evrópu. Sjálfur komst Wenger grátlega nærri því í úrslitaleiknum gegn Barcelona árið 2006. Fótbolti 30. maí 2026 11:33
Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu þar sem að Englandsmeistarar Arsenal mæta ríkjandi Evrópu- og Frakklandsmeisturum Paris Saint-Germain. Leiktími á sjálfum deginum er þremur klukkustundum fyrr en hefð hefur verið fyrir. Þar liggja ákveðnar ástæður að baki. Fótbolti 30. maí 2026 11:02
„Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Luis Enrique er fæddur sigurvegari, hetja í heimaborg sinni Gijón eftir afrekin sem leikmaður og þjálfari, og gæti á morgun unnið Meistaradeild Evrópu annað árið í röð með PSG. Fótbolti 29. maí 2026 16:15
Öll lið hans á ferlinum í Meistaradeildinni á sama tíma Öll lið sem varnarmaðurinn Raphael Varane hefur spilað fyrir munu keppa í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Þetta eru liðin Lens, Real Madrid, Manchester United og Como. Fótbolti 25. maí 2026 14:45
Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Þjálfari enska fótboltaliðsins Arsenal var gagnrýndur fyrir að fagna of ákaft sigri á spænska liðinu Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í byrjun mánaðar – Arsenal var ekki búið að vinna bikarinn. Lífið 21. maí 2026 07:02
Loftleiðir á lúxusþotum á Norður-Atlantshafinu Loftleiðir Icelandic, dótturfélag Icelandair Group, hefur tekið að sér að fljúga áætlunarflug á lúxusþotum yfir Atlantshafið í sumar. Félagið mun einnig á sömu þotum flytja knattspyrnulandslið nokkurra þjóða á heimsmeistarakeppnina. Innlent 12. maí 2026 07:57
Arteta uppskar hlátur eftir að hafa verið spurður út í gagnrýni á fagnaðarlæti Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, gefur lítið fyrir gagnrýni á fagnaðarlæti liðsins eftir að það hafði tryggt sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á dögunum. Enski boltinn 9. maí 2026 12:33
Markið frá Kane gæti reynst óhemju dýrmætt fyrir allt annað lið Jöfnunarmark Harry Kane fyrir Bayern gegn PSG í gærkvöld dugði ekki til að koma Bayern í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Markið gæti hins vegar endað á að skila þýsku liði í keppnina á næstu leiktíð. Fótbolti 7. maí 2026 12:03
Rússinn sem hrifsaði til sín sæti Donnarumma „Mér finnst þetta bara svo áhugavert,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson í Meistaradeildarmörkunum þegar talið barst að rússneska markverðinum Matvey Safonov. Hann hefur óvænt unnið sig upp í stöðu aðalmarkvarðar PSG og er kominn með liðinu í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 7. maí 2026 11:00
Dómarnir sem gerðu Bæjara brjálaða: „Maður skilur þá mjög vel“ „Það eru stór atvik sem hefðu getað breytt leiknum þvílíkt,“ sagði Albert Brynjar Ingason í Meistaradeildarmörkunum, þegar talið barst að dómaraákvörðunum sem gerðu Bæjara brjálaða í leiknum gegn PSG í gærkvöld. Fótbolti 7. maí 2026 09:00