Fótbolti

Hörður Björgvin gæti misst af Meistaradeildarleiknum á móti Real Madrid

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hörður Björgvin Magnússon.
Hörður Björgvin Magnússon. Vísir/Getty
Hörður Björgvin Magnússon missir af fyrsta leik CSKA Moskvu í Meistaradeildinni á leiktíðinni eftir að hafa meiðst í deildarleik um helgina.

Samkvæmt heimildum vefsíðunnar fótbolti.net þá verður Hörður Björgvin frá í tvær til þrjár vikur.

CSKA Moskva mætir Viktoria Plzen í Meistaradeildinni annað kvöld en þetta hefði annars orðið fyrsti leikur Harðar í Meistaradeildinni.





Næsti leikur CSKA Moskvu er síðan á móti Real Madrid á heimavelli 2. október eða eftir fjórtán daga. Það þarf allt að ganga upp hjá Herði í endurhæfingunni ætli hann að ná honum.

Fótbolti.net segir að Hörður Björvin ætti að vera kominn á fulla ferð fyrir leiki Íslands gegn Frakklandi og Sviss í október.

Hann gat ekki spilað landsleikinn á móti Sviss á dögunum en var með á móti Belgíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×