Biðlistar eru ekki bara tölur á blaði Sveinn Arnarsson skrifar 21. apríl 2018 10:00 Leifur, 75 ára gamall Reykvíkingur, bíður eftir liðskiptaaðgerð á mjöðm. Vísir/Eyþór „
Í allri þessari umræðu í þjóðfélaginu um biðlista eftir liðskiptaaðgerðum og kostnað við aðgerðir gleymist að á bak við biðlista er fólk sem bíður kvalið eftir aðgerð. Biðlistar eru ekki tölur á blaði heldur geyma þeir sjúklinga sem geta lítið annað gert en beðið,“ segir Leifur Á. Aðalsteinsson, 75 ára gamall Reykvíkingur sem bíður eftir liðskiptaaðgerð á mjöðm. Leifur er einn fjölmargra sem bíða í íslensku heilbrigðiskerfi eftir liðskiptaaðgerð. Liðskiptaaðgerðir eru framkvæmdar af hinu opinbera á Landspítalanum, á Akranesi og á Akureyri. Einnig hefur Klíníkin í Ármúla gert nokkra tugi aðgerða af þessu tagi, bæði liðskiptaaðgerðir á mjöðm og hné. Klíníkin er hins vegar ekki með samning við Sjúkratryggingar Íslands um aðgerðirnar og því tekur hið opinbera ekki þátt í kostnaðinum við þær.Fær viðtal í haust Hægt er að grynnka á biðlistum með því að gera samning við Klíníkina um að taka að sér fleiri aðgerðir og þannig stytta biðtíma sjúklinga. Leifur segir þann tíma sem hann hefur beðið hafa reynst honum þungbær. „Ég var búinn að vera kvalinn nokkuð lengi áður en heimilislæknirinn minn sótti um liðskiptaaðgerð fyrir mig þann 4. janúar. Ég fékk svarbréf þann 23. mars frá Landspítalanum með þeim orðum að tilvísun mín frá heimilislækni væri í vinnslu og ég myndi fá bréf eftir fimm til sex mánuði frá þeim degi um viðtal við bæklunarlækni,“ segir Leifur. Hann segist hafa verið nokkuð ósáttur við þessar upplýsingar og tjáð spítalanum að hann gæti ómögulega beðið svo lengi eftir aðgerð. „Ég fékk hálf kaldhæðnislegt svar frá spítalanum þess efnis að heimilislæknirinn yrði bara að „halda mér gangandi á meðan“ með verkjalyfjum.“Einangrunin erfiðust Leifur segir þessa bið taka verulega á sig bæði líkamlega en ekki síður andlega. „Það eru ekki bara líkamlegar þjáningar og verkir sem þessu fylgir heldur margt annað sem maður þarf að takast á við einnig,“ segir Leifur. „Þegar þú ert svona þjáður þá minnkar allur vilji og geta til mannlegra samskipta. Við sem erum í þessum sporum einangrumst heima hjá okkur og minnkum samskipti óafvitað við vini og fjölskyldu. Það er þessi einangrun sem verður svo erfið.“ 709 sjúklingar voru á biðlista í febrúar eftir liðskiptaaðgerð á hné og á sama tíma voru 385 sjúklingar í bið eftir liðskiptaaðgerð á mjöðm. Í fyrra voru 800 aðgerðir á mjöðm gerðar hér á landi en rétt tæplega 800 hnjáliðaskipti.Bara hugsað um kostnað „Það gleymist líka í þessari umræðu um biðlista eftir liðskiptaaðgerðum að sjúklingar í bið lifa við þannig verki að maður hættir að gera það sem maður gerði áður. Ég fer ekki í sund og ekki í göngutúr sem hefur þær afleiðingar að líkaminn rýrnar og vöðvar minnka, mótstöðuafl ónæmiskerfisins minnkar. Þetta virðist víst skipta ráðamenn engu máli. Þar er bara hugsað um kostnað og biðlista. Auðvitað viljum við ekki einangrast en það gerist hægt og rólega. Maður hefur minni vilja til að hitta vini, það hverfur einhvern veginn,“ segir Leifur. „Til að mynda tók ég það ráð að fara í Hörpu vegna Barnamenningarhátíðar til að dást að litla barnabarninu mínu dansa á sviðinu. Það var æðisleg stund. En það þýddi það að ég svaf ekkert nóttina eftir vegna verkja. Maður vegur og metur hvað maður gerir hverju sinni því ég veit að verkirnir munu koma,“ bætir hann við. Hafi íslenskir sjúklingar beðið í þrjá mánuði eftir aðgerð hér á landi gefst þeim tækifæri til að fara til Svíþjóðar í aðgerð og greiða Sjúkratryggingar þær aðgerðir að fullu. En af einhverjum ástæðum er ekki vilji til þess að gera samning við Klíníkina um að grynnka á biðlistunum og spara fé hins opinbera en Klíníkin gerir aðgerðirnar fyrir um þriðjung þeirrar upphæðar sem það kostar að flytja sjúklingana til Svíþjóðar.Vantar pennastrik ráðherra Að mati Leifs er mikilvægt að sjúklingar séu settir í forgang í íslensku heilbrigðiskerfi. „Það eru margir sem eru í sömu sporum og ég, sem bíða eftir aðgerð kvaldir heima hjá sér. Það þarf að setja þessa sjúklinga í forgang. Ráðherra hefur sagt það óásættanlegt að fólk sé sent til Svíþjóðar í aðgerðir sem hægt er að gera hér á landi. Ráðherra verður hins vegar að svara því hvernig hún ætlar að breyta því,“ segir Leifur og hefur ákveðnar hugmyndir um hvað sé hægt að gera. „Þetta er í raun ofureinfalt. Það er rétt sem kom fram hjá framkvæmdastjóra Klíníkurinnar um að pólitískan vilja skorti til að taka á þessum vanda. Að mínu mati þarf ekki nema eitt pennastrik ráðherra og þá er hægt að ráðast á þennan biðlista og kippa þessu í liðinn, ef svo má að orði komast.“ Leifur á von á því að fá viðtal við bæklunarlækni Landspítalans síðsumars. Á meðan mun hann þurfa að bíða eftir aðgerðinni. „Ég er ekki einn í þessu. Mörg hundruð manns bíða á sama tíma. Þetta er lifandi fólk og stjórnmálamenn ættu að sjá sóma sinn í að huga að því að biðlisti er ekki tala á blaði, heldur sjúklingar í sárri neyð eftir aðgerð.“
Birtist í Fréttablaðinu Heilbrigðismál Mest lesið „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Innlent Ísland, þvert á flokka kærir þrjú fyrir hatursorðræðu Innlent Módelið svínvirkar fyrir marga en þó ekki alla Innlent Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Innlent Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti Innlent Gerðu árás á sjónvarpshúsið í miðri útsendingu Erlent Árásarmaðurinn í Minnesota handtekinn Erlent Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Innlent Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Innlent Fyrsta konan sem stýrir MI6 Erlent Fleiri fréttir Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Hæ, hó og jibbíjeijað um allt land: Svona er dagskráin 17. júní Lágmarks lokanir í kringum Austurvöll á 17. júní Ísland, þvert á flokka kærir þrjú fyrir hatursorðræðu Þref á þingi og ráðherra vill bregðast við hækkandi raforkuverði Björgunarsveitir leita Sigríðar áfram Lausir úr haldi grunaðir um líkamsárás á Akureyri Höfðu samband við frönsku lögregluna vegna andlátanna Ný skýrsla: Raforkuverð heimila hafi hækkað um ellefu prósent Verður verkefnastjóri viðburða og grasrótarstarfs hjá Viðreisn Bein útsending: Kynning á þróun raforkukostnaðar og áhrifum á notendur Hvorki bókun 35 né veiðigjöld á dagskrá í dag Módelið svínvirkar fyrir marga en þó ekki alla „Kærkomin ró“ yfir höfuðborgarsvæðinu „Svo bakkarðu upp að línu og þenur drusluna“ Sjá meira