Jóhann og Jóhann þjálfa Grindavíkurliðin næsta vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. apríl 2018 14:30 Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur. vísir/ernir
Grindvíkingar hafa gengið frá þjálfaramálum meistaraflokka sinna fyrir næsta tímabil og þar eru nafnar á ferðinni. Jóhann Þór Ólafsson mun halda áfram með meistaraflokk karla og halda áfram því starfi sem þar hefur verið í gangi. „Einhverjar breytingar eru fyrirsjáanlegar á leikmannahópnum og er full vinna í gangi með þau mál,“ segir á fésbókarsíðu Körfuknattleiksdeildar Grindavíkur. Jóhann Þór Ólafsson er því að fara að hefja sitt fjórða ár með Grindavíkurliðið en undir hans stjórn hefur liðið unnið 35 af 66 deildarleikjum (53 prósent) og 8 af 19 leikjum í úrslitakeppni (42 prósent). Jóhann fór með Grindavíkurliðið alla leið í lokaúrslitin í fyrra en í ár datt liðið út í átta liða úrslitunum án þess að vinna leik í úrslitakeppninni. Hjá meistaraflokki kvenna hefur Jóhann Árni Ólafsson verið ráðinn þjálfari og mun hann taka við af Ólöfu Helgu Pálssdóttur. „Kkd UMFG bindur miklar vonir við ráðningu Jóhanns Árna og um leið þökkum við Ólöfu Helgu fyrir hennar framlag í vetur og óskum henni velfarnaðar,“ segir á fésbókarsíðu Körfuknattleiksdeildar Grindavíkur. Jóhann Árni Ólafsson þekkir vel til yngri leikmanna Grindavíkur enda hefur hann unnið flott starf í yngri flokkum félagsins undanfarin ár. Grindavíkurkonur eru í 1. deild kvenna en þær töpuðu á móti KR í undanúrslitum úrslitakeppninnar á dögunum.
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Mest lesið Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti United boðið að skrapa botninn á tunnunni Fótbolti Brottreksturinn kom Horner í opna skjöldu Formúla 1 Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Körfubolti Hélt fótboltabúðir fyrir hinsegin ungmenni Sport Sengun í fantaformi í sumarfríinu Körfubolti Djokovic í undanúrslit í fjórtánda sinn Sport Fannst látinn í hótelherbergi sínu Sport Algjörir yfirburðir PSG gegn Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Sjá meira