Pique bjargaði stigi fyrir Barcelona í borgarslagnum 4. febrúar 2018 17:00 Leikmenn Espanyol eltast við Suárez í leiknum. Vísir/Getty Gerard Pique jafnaði metin fyrir Barcelona og bjargaði stigi stuttu fyrir leikslok í 1-1 jafntefli í borgarslagnum gegn Espanyol en Börsungar eru því enn ósigraðir eftir 22 umferðir. Aðstæðurnar voru hreint út sagt hörmulegar á RCDE-vellinum í dag, þungur völlur og mikið af pollum sem gerði það að verkum að leikmenn áttu erfitt með að koma boltanum á milli manna. Staðan var markalaus í hálfleik en það vakti athygli að Lionel Messi byrjaði á varamannabekk Barcelona í leiknum. Gerard Moreno kom Espanyol yfir á 66. mínútu leiksins með skalla af stuttu færi stuttu eftir að Lionel Messi hafi komið inn sem varamaður. Það var svo Pique sem jafnaði metin með skalla eftir aukaspyrnu Messi á 82. mínútu en það reyndist síðasta mark leiksins. Atletico Madrid getur því minnkað forskot Börsunga niður í níu stig þegar þeir mæta Valencia á eftir en Espanyol heldur áfram að berjast við botn deildarinnar í 15. sæti með 25 stig að 22 umferðum loknum. Spænski boltinn