Frábær þriðji leikhluti skilaði Keflavík og Val sigri 3. febrúar 2018 18:45 Embla, hér í leik gegn Njarðvík, var með tólf stig og sjö fráköst í leiknum í dag. Vísir/Vilhelm
Keflavík vann 29 stiga sigur á Skallagrím 98-69 í Dominos-deild kvenna en á sama tíma unnu Valskonur 22 stiga sigur 69-47 gegn Njarðvík. Bæði liðin skelltu í lás í þriðja leikhluta í varnarleiknum og skilaði það sigrinum en með sigrinum ná Valskonur toppsætinu einar og sér en Keflavík og og Haukar deila 2-3. sæti, tveimur stigum eftir á en Haukar eiga þó leik til góða. Í Keflavík var töluvert jafnræði með liðunum framan af og var munurinn aðeins fjögur stig í hálfleik, 44-40, heimaliðinu í vil. Þá setti Keflavík í lás og vann þriðja leikhluta 33-8 og tók 29 stiga forskot inn í lokaleikhlutan en þrátt fyrir ágætis rispu Skallana ógnuðu þær ekki forskoti Keflavíkur. Brittanny Dinkins var með þrefalda tvennu fyrir Keflavík í leiknum, 23 stig, 17 stoðsendingar og ellefu fráköst en Carmen Tyson-Thomas var atkvæðamest hjá gestunum með 28 stig. Í Valsheimilinu tóku Valskonur á móti botnliði Njarðvíkur en það tók þær töluverðan tíma að hrista spræka Njarðvíkinga frá sér. Munurinn var aðeins fimm stig í hálfleik en þær héldu Njarðvík í aðeins fjórum stigum í þriðja leikhluta og héldu þeim stigalausum í rúmlega tíu mínútur. Reyndist það gera út um leikinn. Aalyah Whiteside var stigahæst hjá Valsliðinu með 22 stig, sex fráköst og sex stoðsendingar en Shalonda R. Winton bar af hjá Njarðvík með 23 stig og 16 fráköst ásamt því að stela sjö boltum en tapa honum tíu sinnum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Handbolti „Hrædd um að við séum að dragast aftur úr“ Fótbolti Óttar Magnús færir sig um set á Ítalíu Fótbolti Topplið ÍR tapaði þremur mikilvægum stigum Fótbolti Liverpool leggur númerið hans Jota á hilluna að eilífu Fótbolti Segir hitann á HM hættulegan Fótbolti Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Belgar kveðja EM með sigri Fótbolti Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Kærkominn endurkomusigur Grindvíkinga Fótbolti Fleiri fréttir Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Sjá meira