Lestinni var ekið allt of hratt Samúel Karl Ólason skrifar 19. desember 2017 10:48 Minnst þrír dóu í slysinu og 72 voru fluttir á sjúkrahús. Þar af tíu í alvarlegu ástandi. Vísir/Getty
Lest sem fór út af sporinu í Washington í Bandaríkjunum í gær var ekið um 80 kílómetrum yfir hámarkshraða þegar slysið varð. Hámarkshraði á staðnum þar sem slysið varð er 50 kílómetrar en lestin var á 130 kílómetra hraða. Minnst þrír dóu í slysinu og 72 voru fluttir á sjúkrahús. Þar af tíu í alvarlegu ástandi. Þetta kemur fram í gögnum úr lestinni en ástæða þess að henni var ekið svo hratt liggur ekki fyrir að svo stöddu. Búið er að leita í öllum vögnum lestarinnar en embættismenn segja að ekki sé hægt að útiloka að fleiri hafi dáið eða muni deyja.Alls voru 80 farþegar um borð í lestinni og fimm í áhöfn. Þrettán lestarvagnar fóru út af sporinu á brú þar sem lestarteinarnir liggja yfir hraðbraut. Samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar lifði lestarstjóri lestarinnar af. Emma Shafer var í lestinni og ræddi við blaðamann AP. Hún segir að eftir slysið hafi allt verið skringilega hljóðlátt.„Svo byrjaði fólk að öskra vegna meiðsla sinna. Ég veit ekki hvort ég heyrði í sírenunum en þær voru þarna,“ sagði Shafer. Ökumenn sem voru á ferð um hraðbrautina sem lestarteinarnir liggja yfir voru þeir fyrstu til að koma farþegum lestarinnar til bjargar. Nokkrir bílar urðu fyrir lestarvögnum eða klesstu á þá og hlutu nokkrir ökumenn og farþegar bíla meiðsli. Enginn þeirra dó.
Bandaríkin Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira