Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Eiður Þór Árnason skrifar 11. apríl 2026 22:44 Byggingin og bílastæðið þaðan sem níu ára drengnum var bjargað. AP Níu ára gömlum dreng var bjargað á dögunum eftir að hafa verið innilokaður í sendibíl föður síns í austurhluta Frakklands frá árinu 2024, að sögn saksóknara á svæðinu. Barnið hefur verið lagt inn á sjúkrahús og er faðir þess í haldi lögreglu.
Nágranni tilkynnti lögreglu að hann hefði heyrt hljóð frá barni sem komu úr sendibíl í þorpinu Hagenbach, nálægt landamærum Sviss og Þýskalands, á mánudag. AP-fréttaveitan greinir frá þessu og hefur úr yfirlýsingu saksóknara sem birt var í dag. Lögregla hafi brotið sér leið inn í sendibílinn og þar fundið barnið „liggjandi í fósturstellingu, nakið, undir teppi liggjandi ofan á ruslahaug og nálægt saur,“ segir saksóknari. Drengurinn hafi greinilega verið vannærður og ekki getað gengið lengur eftir að hafa verið svo lengi í sitjandi stöðu. Þá sagðist hann ekki hafa farið í sturtu frá árinu 2024. Ætlað að vernda drenginn Faðir drengsins sagði lögreglu að hann hefði sett barnið í bílinn í nóvember 2024 „til að vernda það“ þar sem sambýliskona hans vildi senda þá sjö ára gamlan drenginn á geðsjúkrahús, að sögn saksóknara. Sá sagði að engar sjúkraskrár bentu til þess að drengurinn hefði átt við geðræn vandamál að stríða áður en hann hvarf og að hann hefði fengið góðar einkunnir í skóla. Drengurinn tjáði lögreglu að hann hefði átt í „miklum erfiðleikum“ með sambýliskonu föður síns og talið að faðir hans „hefði ekki haft neitt annað val“ en að loka hann inni, að sögn saksóknara. Drengurinn fannst í bænum Hagenbach í austurhluta Frakklands.AP Faðirinn var ákærður meðal annars fyrir mannrán og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Sambýliskona hans sagðist ekki hafa vitað að drengurinn væri í sendibílnum. Hún var ákærð, meðal annars fyrir að aðstoða ekki ólögráða einstakling í hættu, en var látin laus. Tólf ára gömul systir drengsins og tíu ára gömul dóttir sambýliskonu föður hans eru komnar í umsjá barnaverndaryfirvalda. Embætti saksóknara rannsakar nú hvort aðrir hafi vitað af innilokun drengsins, að sögn AP. Vinir og fjölskylda sögðu lögreglu að þau hafi talið að drengurinn væri á geðdeild. Þá var kennurum hans sagt að hann hefði skipt um skóla, að sögn saksóknaraembættisins.
Frakkland Erlend sakamál Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira