Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Kjartan Kjartansson skrifar 10. apríl 2026 13:37 Mette Frederiksen (t.h.) og Lars Løkke Rasmussen (t.v.) þegar nýtt þing kom saman í fyrsta skipti eftir kosningar í dag. Vísir/EPA Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Moderaterna í Danmörku, segist hættur að ræða um stjórnarmyndun við Mette Frederiksen, leiðtoga Jafnaðarmanna, nema hún fallist á að ræða við fulltrúa borgaraflokkanna. Flokkur Rasmussen er í lykilstöðu við stjórnarmyndun.
Frederiksen, starfandi forsætisráðherra, er með stjórnarmyndunarumboð eftir þingkosningar sem fóru fram í Danmörku í síðasta mánuði. Fram að þessu hefur hún rætt við fulltrúa flokka í rauðu blokkinni svonefndu auk Rasmussen og Moderaterna sem jafnaðarmenn unnu með á síðasta kjörtímabili með takmörkuðum árangri. Nú er Rasmussen farið að leiðast þófið og vill að Frederiksen hleypi miðhægriflokknunum að borðinu. „Við tökum ekki þátt í frekari fundum með henni nema hún taki þá ósk alvarlega,“ sagði Rasmussen í dag. Jafnaðarmenn þurfa að taka ósk Rasmussen alvarlega þar sem hann gæti hæglega kosið að mynda ríkisstjórn með hægri flokkunum í staðinn. Fram að þessu hefur hann sagst vilja mynda stjórn yfir miðju stjórnmálanna. Troels Lund Poulsen, leiðtogi Venstre, þriðja flokksins í fyrri ríkisstjórn Frederiksen og Rasmussen, hefur reynt að fá hann til þess að horfa til hægri. Poulsen hefur áður lýst því yfir að honum hugnist ekki að sitja aftur í ríkisstjórn með jafnaðarmönnum. Spurður að því dag hvort hann teldi að Poulsen ætti að fá stjórnarmyndunarumboðið í staðinn fyrir Frederiksen sagði Rasmussen að teldi ekki þörf á því. „Ef Mette Frederiksen vill taka verkefnið að sér og bjóða Venstre og Þjóðarflokknum, helst með okkur, um efnahagsstefnu þá er það í fínu lagi,“ sagði Rasmussen við fréttamenn í dag.
Danmörk Þingkosningar í Danmörku Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira