Keflvíkingar ekki lengi að redda landsliðskonu fyrir Emelíu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. desember 2017 18:42 Embla Kristínardóttir hefur spilað með íslenska landsliðinu undanfarin ár. Vísir/Anton
Embla Kristínardóttir hefur gert samning við Keflavík og mun spila með Íslands- og bikarmeisturum það sem eftir lifir tímabilsins. Sverrir Þór Sverrisson staðfestir þetta í samtali við Víkurfréttir. Embla hefur spilað með Grindavík síðustu ár en rifti samningi sínum á dögunum eftir ósætti á milli hennar og spilandi þjálfara Grindavíkurliðsins, Angelu Rodriguez. Embla hefur verið í íslenska landsliðinu fram að nýjasta verkefni þess en hún hefur farið á kostum með Grindavík í 1. deildinni þar sem hún var með 21,3 stig, 12,4 fráköst og 5,0 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hún var efst í stigum, stoðsendingum, stolnum boltum og framlagi í 1. deildinni auk þess að vera í 2. sæti í stoðsendingum. Embla er uppalinn hjá Keflavík og er því komin aftur heim en lék síðast með liðnu 2014-15 tímabilið. Embla varð Íslandsmeistari með Keflavík vorið 2013. Þetta eru mjög góðar fréttir fyrir Keflavík sem missti landsliðskonuna Emelíu Ósk Gunnarsdóttur í vikunni. Emelía sleit krossband í leik á móti Skallagrími í Borgarnesi á miðvikudagskvöldið. Keflvíkingar voru því ekki lengi að redda annarri íslenskri landsliðskonu fyrir Emelíu.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Handbolti „Hrædd um að við séum að dragast aftur úr“ Fótbolti Óttar Magnús færir sig um set á Ítalíu Fótbolti Topplið ÍR tapaði þremur mikilvægum stigum Fótbolti Liverpool leggur númerið hans Jota á hilluna að eilífu Fótbolti Segir hitann á HM hættulegan Fótbolti Belgar kveðja EM með sigri Fótbolti Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Kærkominn endurkomusigur Grindvíkinga Fótbolti Fleiri fréttir Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Sjá meira