Tínir um fimmtíu lítra af krækiberjum á hverju hausti Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 3. september 2017 20:12 „
Það er nauðsynlegt að hafa vindinn með sér og biðja hann að blása í berin,“ segir Arnheiður Jónsdóttir berjatínslukona sem tínir um fimmtíu lítra af krækiberjum við Ingólfsfjall á hverju hausti. Þá segir hún mikilvægt að þakka berjatínslulandinu fyrir þegar búið er að tína berin svo það verði ber aftur á staðnum að ári. Arnheiður Jónsdóttir fer nær daglega undir Ingólfsfjall og fyllir þar hverja fötuna af annarri af krækiberjum. „Það gengur bara vel. Það er orðin góð berjaspretta núna, þó hún hafi kannski einhvern tímann verið betri. Ég veit reyndar ekki hvort ég geti safnað jafn mörgum berjum og í fyrra, þá bjó ég til fimmtíu lítra af krækiberjasaft. Frystikistan var hálf af berjasaft.“ Arnheiður segir að ber séu mjög holl. „Mér er sagt það. Það er nú aðallega maðurinn minn sem drekkur berjasaftið og hann fær eiginlega aldrei kvef og er mjög sprækur miðað við aldur og fyrri störf,“ segir hún. Arnheiður er alltaf með ákveðna serimóníu þegar hún fer í berjamó. „Fyrst þegar maður kemur í berjamó þá biður maður vini sína hérna undir fjallinu að vísa sér á berjamó og það bregst ekki að þeir gera það.“ Segir Arnheiður að nauðsynlegt sé að hafa vindinn með sér í liði. „Síðan kemur náttúrulega fullt af rusli í berin. Það eru krummaber frá því í fyrra, lyng og alls konar og þá þarf maður að hafa vindinn í liði með sér. Biðja hann að blása í berin. Þá segi ég: vindur, vindur, vinur minn, blástu nú í berin mín. Hann bregst við. Svo þarf maður að muna eftir því að þakka fyrir sig þegar maður fer úr berjamónum. Það er sko mikilvægt svo maður finni einhver ber næst,“ bætir berjatínslukonan við.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira