Umfjöllun og viðtöl: Skallagrímur - Snæfell 61-71 | Ótrúlegur endasprettur Snæfells Gunnhildur Lind Hansdóttir í Borgarnesi skrifar 18. febrúar 2017 19:00 Aaryn Ellenberg átti frábæran leik. vísir/daníel
Snæfell er komið á toppinn í Domino's deild kvenna eftir 10 stiga sigur á Skallagrími, 61-71, í Vesturlandsslagnum í dag. Með þessum 10 stiga sigri tóku Snæfellsstúlkur ekki bara toppsætið í deildinni heldur eru þær núna með betri árangur í innbyrðis viðureigninni gegn Skallagrími sem gæti reynst afar dýrmætt þegar uppi verður staðið. Allar viðureignir þessa liða hafa verið jafnar og fínasta skemmtun og leikur dagsins var engin undantekning. Fyrstu stigin komu frá Skallagrím þegar Jóhanna Björk Sveinsdóttir setti niður fallegt stökk, hins vegar svaraði Berglind Gunnarsdóttir stuttu seinna með stökkskoti á sínum helming. Fyrstu mínúturnar settu tóninn hvað koma átti og voru liðin dugleg að skiptast á að skora sem og leiða. Það var svo Snæfell sem fór með forystuna í hálfleik, 36-32. Í seinni hálfleik litu gestirnir mun betur út og voru að spila af mikilli liðsheild en Skallagrímskonur duttu oft á tíðum í einstaklings framlög sem var hreinlega ekki gera neinum neitt. Snæfellsstúlkur komust mest í 10 stig í þriðja leikhluta en það varði ekki lengi og mætti halda að Skallagrímur hafi varla tekið eftir forystu gestanna því þær gjörsamlega snéru leiknum sér í hag og minnkuðu muninn undir eins. Staðan fyrir loka leikhlutann var 48-46 Snæfell í vil. Í upphafi fjórða leikhluta var allt í járnum og ekkert gefið eftir. Þegar um fjórar mínútur voru eftir komu Heimastúlkur sér í stöðuna 57-52 og var þetta farið að líta ágætlega út fyrir þær. Hins vegar var hungrið í Snæfellsstúlkum meira en nóg og unnu þær lokakaflann 17-2 og tryggðu sér þægilegan og verðskuldaðan 10 stiga sigur 71-61.Af hverju vann Snæfell? Snæfell var með flotta liðsheild allan leikinn og voru að spila vel saman heilt yfir. Þó svo að lykilleikmaður eins og Gunnhildur Gunnarsdóttir hafi ekki alveg fundið sig í leiknum þá voru aðrir sem að að bættu upp fyrir það. Einnig spilaði Snæfell þétta og góða vörn, og í endann settu nánast í lás fyrir heimamenn enda unnu þær loka mínúturnar 17-2.Bestu menn vallarins: Bestar fyrir gestina voru Aaryn Ellenberg og Berglind. Ellenberg var að daðra við þrennuna en hún var með 28 stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar. Frábær leikur hjá henni. Berglind var með 20 stig og 3 stoðsendingar. Einnig átti Bryndís Guðmundsdóttir flottan leik en hún var með 10 stig, 11 fráköst og 5 stoðsendingar og var ekki fjarri því að ná þrennunni. Hjá Borgnesingum var það eins og svo oft áður Sigrún Sjöfn Ámundadóttir sem dró vagninn fyrir heimastúlkur með 19 stig og 10 fráköst.Tölfræðin sem vakti athygli: Skallagrímsstúlkur voru ekki með góða skotnýtingu en einungis 22 af 75 skotum inn í teig rötuðu rétta leið sem gerir 29%. Þriggja stiga nýtingin var sæmileg eða 23%. En eins og fram kom hér fyrir ofan þá spilaði Snæfell mun meira sem heild og sýndi það sig til dæmis í stoðsendinga tölfræðinni. Snæfell var með 21 stoðsendingar í leiknum á móti 13 hjá Skallagrím.Hvað gekk illa? Það gekk illa að skora oft á tíðum, þá sérstaklega fyrir Skallagrím. Hins vegar voru þær duglegar að fara í sóknarfráköst og unnu þá baráttu í tölfræðinni 54-44. Annað sem er að hrjá Skallagrím er að það er hreinlega ekki nóg af skiptimönnum og þegar fer að líða á tímabilið og margir leikir spilaðir í hverjum mánuði þá fer þreytan að setjast í leikmenn bæði líkamlega sem og andlega. Allt hefur þetta áhrif, og nú hafa Skallagrímur tapað þriðja leik sínum í röð ef við tökum bikarúrslitaleikinn með en það er spurning hvort úthaldið sé nóg það sem eftir er tímabils.Skallagrímur-Snæfell 61-71 (18-17, 14-19, 14-12, 15-23)Skallagrímur: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 19/10 fráköst, Tavelyn Tillman 15/8 fráköst/5 stoðsendingar, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 11/10 fráköst, Ragnheiður Benónísdóttir 8/5 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 5/8 fráköst, Fanney Lind Thomas 3/4 fráköst.Snæfell: Aaryn Ellenberg 28/10 fráköst/7 stoðsendingar, Berglind Gunnarsdóttir 20, Bryndís Guðmundsdóttir 10/11 fráköst/5 stoðsendingar, Gunnhildur Gunnarsdóttir 6, Alda Leif Jónsdóttir 3, Sara Diljá Sigurðardóttir 2, María Björnsdóttir 2.Ingi Þór: Ótrúlega ánægður Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, var gífurlega ánægður í leikslok með spilamennsku sinna leikmanna. „Ég er ótrúlega ánægður. Við komumst í góða stöðu um miðbik leiks en þær skipta yfir í svæði. Erum samt að fá fín skot sem við vorum bara að klikka á, lay-upp og svona. Mér fannst við oft bara óheppin, mikið með tvær hendur á bolta en einhvern vegin náum honum ekki, bara óheppin,“ sagði Ingi í samtali við blaðamann Vísi eftir leik. „Við vorum líka að spila góða og flotta vörn. En ég er sérstaklega ánægður með sigurinn í ljósi þess að við vissum það fyrir leikinn að við þyrftum að vinna með 10 stigum og við náðum því hér í dag. Mjög sterkur sigur og við endum þessa erfiða viku á mjög flottan hátt,“ sagði Ingi Þór sáttur í lokin.Manuel: Spiluðum verr en Snæfell Manuel Angel Rodriguez, þjálfari Skallagríms, var þungur á brún eftir leik. „Í dag töpuðum við. Við spiluðum bara verr en Snæfell svo einfalt er það. Við héldum kannski að þetta væri komið þegar við vorum fimm stigum yfir og um fjórar mínútur eftir af leiktíma en það var heldur betur ekki staðan enda töpuðum við loka mínútunum 17-2, fókusinn var bara gjörsamlega farinn undir lokin,“ sagði Manuel hugsi við blaðamann Vísis. Þrátt fyrir tap á heimavelli þá mun Manuel halda í jákvæðnina og segir Skallagrím fjarri því að gefast upp, enda nóg af leikjum eftir. „Ég mun halda áfram að líta á björtu hliðarnar og horfa á framhaldið með jákvæðni. Það er nóg af leikjum eftir. Liðið getur enn tekið efsta sætið í deildinni og ég hef fulla trú á okkur en við þurfum að læra af þessum leikjum, sérstaklega þessum tapleikjum sem og fara að skjóta betur.“Berglind: Úrslitabragur á þessu Berglind Gunnarsdóttir spilaði vel fyrir Snæfell í dag og var að vonum kát með sigurinn á Borgnesingum. „Heilt yfir fannst mér svona úrslita bragur á þessu. Það var hátt tempó nánast allan leikinn, spennistigið hátt, mikið barist, mjög harður leikur hjá báðum liðum. Það var gaman að koma í Borgarnes í dag, alltaf skemmtilegt að spila hérna og flott stemming,“ sagði Berglind um leik dagsins. Með sigrinum er Snæfell komið í efsta sæti í deildinni en þó er nokkuð af leikjum eftir og mikilvægt að hafa báða fætur á jörðinni. „Auðvitað er maður glaður að ná efsta sætinu, en það er fullt eftir og það þarf að klára tímabilið. Þó svo að við höfum unnið Skallagrím í dag þá eigum við eftir að spila við öll liðin í deildinni aftur. Það er ekkert slakað á núna heldur verðum við að halda áfram og bæta í,“ sagði Berglind ákveðin í lokin.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Mick Schumacher gaf sjaldgæfa innsýn inn í líf föður síns Formúla 1 Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti Miklu fleiri bakteríur í ræktinni en á klósettsetunni Sport United menn á allt öðrum og betri stað eftir inngrip Van Nistelrooy Enski boltinn Liverpool hefur áhyggjur af meiðslunum hjá Trent Enski boltinn Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Íslenski boltinn Á bara eftir að skora á Anfield og heimavelli Brentford Enski boltinn Sonur Scottie Pippen kom sér og föður sínum í sögubækurnar Sport Gleymdi að kjósa Vinicius Junior Fótbolti Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Ísland - Rúmenía | Taka á Rúmenum í Ólafssal Fullkominn og frábær leikur Tryggvi dugði ekki Teitur og Sævar fóru fögrum orðum um Kane í Körfuboltakvöldi Martin með tvöfalda tvennu í sigri á toppliðinu „Þegar svona gír er á okkur þá erum við fjandi góðir“ Uppgjörið: Grindavík - Þór Þ. 99-70 | Grindvíkingar svöruðu kallinu Grindavík fær 35 þúsund króna sekt vegna háttsemi Kane Sendu Bronny James niður í G-deild og allir miðarnir seldust upp Fyrstir í NBA í níu ár til að vinna tíu fyrstu leiki sína Jónína með þrennu og Ármannsstelpur ósigraðar á toppnum Pétur leitar að nýjum Bandaríkjamanni: „Fjölhæfari leikmann, einhvern sem getur leyst margar stöður“ Álftanes sá til þess að Haukar eru enn án sigurs Uppgjörið: KR - Njarðvík 86-80 | Fyrsti sigur KR-inga á heimavelli Uppgjörið: ÍR - Keflavík 79-91 | Kanalausir Keflvíkingar sáu til þess að ÍR fagnaði ekki fyrsta sigrinum Leik lokið: Höttur - Valur 83-70 | Heimamenn á beinu brautina Gaz-leikur Pavels: „Þurfa ekki ótrúlegir hlutir að gerast“ Körfuboltamennirnir sem Nablinn væri mest til í að taka tali Uppgjörið: Ísland - Slóvakía 70-78 | Svekkjandi tap gegn Slóvakíu Davíð Tómas dæmir landsleik í Helsinki í dag Þreytir frumraun þrítug: „Beðið eftir þessu í tvö ár“ „Verður sérstök stund fyrir hana“ „Þessi takki sem allir halda að Valur sé að fara kveikja á er ekki til“ Ekki spilað eina mínútu en dæmdur í bann Tommi með Nablann í bandi í Keflavík Klikkaði ekki á skoti í fyrsta leik og var stigahæstur „Þessi tími hefur liðið mjög hægt fyrir mér“ Pavel um varnarleik Keflavíkur: Á að særa stolt þitt Jordan-treyja seldist á 642 milljónir króna Fjórði stigahæsti kaninn en sá með lélegustu skotnýtinguna Tvær stórbrotnar körfur Ja Morant Sjá meira
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Pétur leitar að nýjum Bandaríkjamanni: „Fjölhæfari leikmann, einhvern sem getur leyst margar stöður“
Uppgjörið: ÍR - Keflavík 79-91 | Kanalausir Keflvíkingar sáu til þess að ÍR fagnaði ekki fyrsta sigrinum
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti