Fótbolti

Allt í hnút á toppnum í Þýskalandi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sara Björk hefur spilað átta deildarleiki á tímabilinu.
Sara Björk hefur spilað átta deildarleiki á tímabilinu. vísir/getty
Sara Björk Gunnarsdóttir var í byrjunarliði Wolfsburg sem vann góðan 1-0 sigur á Freiburg í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Það er mikil barátta á toppnum í þýsku deildinni. Turbine Postdam er í toppsætinu með 24 stig og Bayern München í 2. sæti með 22 stig. Essen, Freiburg og Wolfsburg eru svo öll með 20 stig í 3.-5. sæti.

Lara Dickenmann skoraði eina mark leiksins í dag á 26. mínútu.

Sara Björk var tekin af velli þegar 11 mínútur voru til leiksloka. Íslenska landsliðskonan hefur leikið átta deildarleiki á tímabilinu, þar af sjö í byrjunarliði.

Næsti leikur Wolfsburg er gegn Essen á miðvikudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×