Maður leiksins í toppslagnum fékk að heyra það frá þjálfaranum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. nóvember 2016 08:00 Guðrún Ósk Maríasdóttir. Vísir/Eyþór
Guðrún Ósk Maríasdóttir og félagar hennar í Framliðinu eru komnar með fjögurra stiga forskot á toppi Olís-deildar kvenna eftir sannfærandi fimm marka sigur á útivelli í toppslagnum á móti Stjörnunni um helgina. Stjarnan hefði komist á toppinn með sigri en Fram-liðið komst í 5-0 í upphafi leiks og Stjörnukonur fundu fáar leiðir framhjá Guðrúnu Ósk Maríasdóttur sem var frábær í markinu. „Þetta var mjög mikilvægt fyrir okkur,“ sagði Guðrún Ósk Maríasdóttir eftir leikinn. Hún varði 21 skot í leiknum þar af 3 vítaköst. Það vakti athygli að Guðrún fékk reiðilestur frá þjálfaranum seint í leiknum þrátt fyrir að vera búin að verja eins og berserkur allan tímann. „Við vorum búin að leggja upp með nokkra hluti sem ég klikkaði á. Maður á að taka ákveðna skyldubolta og þegar maður gerir það ekki þá verður hann reiður," sagði Guðrún sem gat brosað af því eftir leik. Hún var þó engar yfirlýsingar eftir leik. „Þetta er þokkalega gott hjá okkur núna,“ sagði Guðrún. Það stefnir samt í allt annað og betra tímabil hjá Fram en í fyrra og þar er góð markvarsla Guðrúnar að hjálpa til. „Þetta er mjög skemmtilegt,“ sagði Guðrún. Stjörnukonur náðu ekki að stoppa sigurgöngu Fram en deildarmeistaratitilinn á leiðinni í Safamýrina? „Mótið er ekki einu sinni hálfnað svo ég ætla ekki að skrifa deildarmeistaratitilinn á þær. Þær eru á toppnum núna og verðskulda það eftir þessa byrjun í haust. Þetta er langt mót og sterk lið í deildinni þannig að þær geta ekkert slakað á, við getum ekkert slakað á og ætlum að halda áfram að anda ofan í hálsmálið á þeim," sagði Stjörnukonan Rakel Dögg Bragadóttir eftir leikinn.
Olís-deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sjá meira