Helena viðurkennir að hafa reynt að tækla Grindvíking í körfuboltaleik | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2016 16:45
Lórenz Óli Ólasson, formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur, er ekki sáttur við það að atvik sem átti sér stað í leik Grindavíkur og Hauka, verði ekki tekið fyrir af dómaranefnd KKÍ. Lórenz Óli Ólasson ræðir málið við karfan.is í dag en Grindvíkingar sendu myndband af atvikinu til nefndarinnar þar sem Helena Sverrisdóttir, leikmaður Hauka sést bregða fæti fyrir Whitney Frazier, leikmann Grindavíkur. „Lórenz segir dómaranefndina hafa svarað því að "það sé ekki hægt að taka afstöðu til þess hvort það hafi þurft að dæma eitthvað á þetta." Dómaranefnd hafi hins vegar sett línuna með því að dæma Ingunni Emblu Kristínardóttur, sem þá lék með Keflavík, í tveggja leikja bann fyrir samskonar brot, að mati formannsins," segir í fréttinni á karfan.is. Það er hægt að sjá þetta atvik í spilaranum hér fyrir ofan. Karfan.is hafði samband við dómaranefnd KKÍ og bar þessi ummæli undir fulltrúa hennar en þar fengust aðeins þau svör að málið hafi verið tekið til efnislegrar meðferðar hjá nefndinni og niðurstaðan sé þessi. Hörður Tulinius á karfan.is bar atvikið einnig undir Helenu sjálfa. Hún vék sér ekki undan þegar leitað var svara hjá henni. Helena segir hafa verið nýbúin að fá olnboga frá Frazier og þegar þarna kemur við sögu lenda þær í samstuði og Helena lendir á gólfinu. „Þegar ég er síðan að fara að standa upp og Whitney ætlar að hlaupa yfir mig fæ ég einhvern leiðinda púka í mig og reyni að "tækla" hana. Algjörlega heimskulegt af minni hálfu en bara í þessa split sekúndu missti ég hausinn," segir Helena en það má lesa meira um málið á karfan.is.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Györ - Víkingur | Víkingar stefna á aðra umferðina Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Fleiri fréttir Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti Sjá meira