Handbolti

ÍBV vann frábæran sigur á Fylki

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ester Óskarsdóttir gerði átt mörk fyrir ÍBV
Ester Óskarsdóttir gerði átt mörk fyrir ÍBV
Framarar gjörsamlega rúlluðu yfir ÍR í Olíd-deilda kvenna í handknattleik í dag en leikurinn fór 36-15.

Staðan í hálfleik var 19-6 en leikið var í Austurberginu. ÍBV vann frábæran eins marks sigur á Fylki, 31-30, í Árbænum en Fylkir var þremur mörkum yfir í hálfleik, 19-16.

Patricia Szölösi og Thea Imani Sturludóttir gerðu báðar níu mörk fyrir Fylki í leiknum en Ester Óskarsdóttir skoraði átta mörk fyrir ÍBV.

Aft­ur­eld­ing og Sel­foss áttust við í Mosfellsbænum og höfðu gestirnir betur, 34-24.

Þá vann HK flottan sigur á KA/Þór í KA-heimilinu, 27-23.

ÍBV er í efsta sæti deildarinnar með 14 stig, jafnmörg stig og Grótta. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×