Skoðun

Öruggar samgöngur – komum heil heim

Þórólfur Árnason skrifar
Stefnumark okkar allra hvern einasta dag, í hverri einustu ferð, er að koma heil heim. Ásetningur um slysalausar samgöngur, þar sem engir mannskaðar verða á Íslandi, verður ætíð að vera okkur efst í huga. Sú neytendavernd og öryggi sem Samgöngustofa vinnur að með réttri skráningu samgöngutækja og skoðun þeirra, eftirliti með menntun og hæfni þeirra sem stýra tækjum og búnaði og leyfisveitingum til rekstraraðila er mikilvæg. Ekki hvað síst er varðar alþjóðlega samkeppnishæfni þjóðarinnar með gagnkvæmum viðurkenningum á flutningatækjum og skírteinum einstaklinga.

Fiskveiðar, ferðaþjónusta eða flutningastarfsemi væru ekki jafn öflug á Íslandi ef ekki væri unnið samkvæmt alþjóðlegum reglum og samkvæmt samningum sem íslenska ríkið hefur undirgengist. Í mörgum tilvikum sér Samgöngustofa síðan um framkvæmd þessara alþjóðlegu reglna og samninga.

Nýjar áherslur um aukna samvinnu

Stofnun Samgöngustofu hefur falið í sér mikil tækifæri, m.a. um samnýtingu fjölbreyttrar þekkingar til aukins öryggis fyrir allar greinar samgangna. Nýjar áherslur um aukna samvinnu við atvinnulíf og rekstraraðila á þessum vettvangi hafa verið í mótun. Alþjóðlegar kröfur um öryggi í samgöngum byggjast í ríkari mæli á því að skráning atvika og frávika eigi sér stað, þau séu greind og viðbragð síðan ráðið í framhaldinu. Slíkt viðbragð getur vissulega verið tillögur að nýjum eða hertum öryggisreglum en ekki síður umbótaferli í vinnubrögðum, fræðslu og forvörnum.

Með samvinnu og skilvirkni að leiðarljósi færumst við nær sameiginlegu markmiði um öruggar samgöngur. Mikilvægur liður í því er ábyrgð þeirra sem hanna og reka samgöngumannvirki eða farartæki eða stjórna þeim, en ekki ógnandi refsivöndur eftirlitsaðila.

Samvinnan skilar sér

Vitundarvakning umliðinna ára hefur bjargað fjölda mannslífa, á sjó, landi og í lofti. Tækniþróun, skýrari umgjörð og ekki síst fræðsla og forvarnarstarf er meðal þess sem hefur breytt viðmiðum til hins betra. Banaslys eru ekki náttúrulögmál og mannskaðar ekki eðlilegur fórnarkostnaður. Nauðsyn sameiginlegrar sýnar um heildstæðar, öruggar samgöngur hefur aldrei fyrr verið jafn aðkallandi og með ábyrgri hegðun getum við öll lagt hönd á plóg.




Skoðun

Sjá meira


×