ÍBV vann Gróttu og stal fjórða sætinu | Þessi lið mætast í úrslitakeppninni Tómas Þór Þórðarson skrifar 31. mars 2015 21:44 Vera Lopes skoraði átta mörk gegn deildar- og bikarmeisturunum í kvöld. vísir/þórdís
ÍBV gerði sér lítið fyrir og vann deildar- og bikarmeistara Gróttu, 22-20, á útivelli í lokaumferð Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld. Eyjakonur voru tveimur mörkum undir í hálfleik, 10-8, en komu sterkar til leiks í þeim síðari sem þær unnu með fjórum mörkum og leikinn með tveimur, 22-20. Vera Lopes átti stórleik fyrir ÍBV og skoraði átta mörk en Díana Dögg Magnúsdóttir og Ester Óskarsdóttir skoruðu fjögur mörk hvor. Laufey Ásta Guðmundsdóttir skoraði fimm mörk fyrir Gróttu. Með sigrinum skaust ÍBV upp fyrir Hauka í fjórða sæti deildarinnar. Bæði lið hafa 28 stig en ÍBV fær fjórða sætið á betri árangri í innbyrðis viðureignum. Munurinn á liðunum er ævintýrlega lítill. Haukar unnu ÍBV með einu marki í Eyjum, 28-27, en Eyjakonur unnu tveggja marka sigur að Ásvöllum þegar liðin mættust þar og ná fjórða sætinu þökk sé því. Rimma liðanna í átta liða úrslitum lofar því góðu. Haukar hefðu getað haldið fjórða sætinu á stigum með sigri á Fram í kvöld en það tókst ekki. Fram vann öruggan ellefu marka sigur, 30-19, þar sem Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði fimm mörk fyrir Safamýrarstúlkur.Úrslit lokaumferðarinnar: Fylkir - FH 27-20 Fram - Haukar 30-19 Valur - Selfoss 30-19 ÍR - KA/Þór 20-22 Grótta - ÍBV 18-20 Stjarnan - HK 32-20Lokastaðan: Grótta 38, Fram 36, Stjarnan 34, ÍBV 28, Haukar 28, Valur 26, Fylkir 22, Selfoss 18, HK 17, FH 9, KA/Þór 7.Viðureignirnar í átta liða úrslitum: Grótta - Selfoss Fram - Fylkir Stjarnan - Valur ÍBV - Haukar
Olís-deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sjá meira