Innlent

Dagur á leið til Kaupmannahafnar

Atli Ísleifsson skrifar
Dagur verður viðstaddur minningarathöfn vegna atburðanna í Kaupmannahöfn í kvöld.
Dagur verður viðstaddur minningarathöfn vegna atburðanna í Kaupmannahöfn í kvöld. Vísir/Stefán
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri verður viðstaddur minningarathöfn í kvöld vegna voðaverðanna sem framin voru í Kaupmannahöfn um helgina.

Dagur sendi Frank Jensen borgarstjóra Kaupmannahafnar samúðarkveðju vegna voðaverkanna.

Samúðarkveðjan frá Reykjavíkurborg hljómar svo.

„Borgarstjóri Frank Jensen.

Kæri Frank. Fyrir hönd allra íbúa Reykjavíkur vil ég votta þér innilega samúð vegna voðaverkanna í Kaupmannahöfn 14. febrúar síðastliðinn. Við verðum að standa saman um opið og frjálst lýðræðisskipulag – og gegn því tilgangslausa ofbeldi sem birtist okkur á laugardaginn var. Hugur okkar er hjá íbúum okkar gömlu vinaborgar, fórnarlömbum árásarinnar, ættingjum þeirra og vinum.

Dagur B. Eggertsson Borgarstjóri Reykjavíkur.“

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að Dagur hafi flogið til Kaupmannahafnar nú síðdegis til að vera viðstaddur minningarathöfn um fórnarlömb árásanna.

„Minningarathöfnin hefst klukkan átta í kvöld á Gunnar Nu Hansen torgi á Austurbrú.

Allar opinberar stofnanir í Danmörku flagga í hálfa stöng í dag og búist er við miklum mannfjölda á athöfnina.  Forsætisráðherra Danmerkur og aðrir ráðherrar Danmerkur verða viðstaddir athöfnina.“

Samúðarkveðja Dags B. Eggertssonar á dönsku:

Borgmester Frank Jensen

Kære Frank, På vegne af alle Reykjaviks indbyggere vil jeg udtrykke min dybeste medfølelse i forbindelse med attentaterne i København den 14. februar. Vi må stå sammen om et åbent og frit demokratisk system - og imod formålsløs vold således som vi så den sidste lørdag.
 Vore tanker er hos indbyggerne i vores gamle venskabsby København, hos attentaternes ofre, deres slægtninge og venner.

Dagur B. Eggertson, borgmester i Reykjavik





Fleiri fréttir

Sjá meira


×