Körfubolti

Jón Arnór skoraði tíu stig í sigri Malaga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Arnór skoraði 10 stig á tæpum 11 mínútum.
Jón Arnór skoraði 10 stig á tæpum 11 mínútum. vísir/getty
Jón Arnór Stefánsson, Íþróttamaður ársins 2014, og félagar hans í Unicaja Malaga unnu tólf stiga sigur, 86-74, á Bilbao Basket í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Góður annar leikhluti réði úrslitum en Malaga vann hann með tíu stigum, 22-12. Staðan í hálfleik var 41-34 og fyrir lokaleikhlutann var munurinn kominn upp í ellefu stig, 64-53. Tólf stig skildu liðin að þegar uppi var staðið, 86-74.

Jón Arnór spilaði í tæpar 11 mínútur og skoraði 10 stig. Hann hitti úr fjórum af sjö skotum sínum utan af velli.

Malaga situr í toppsæti spænsku deildarinnar, tveimur stigum á undan Joventut Badalona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×