Körfubolti

Jón Arnór skoraði 4 stig í sigri Unicaja

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Jón Arnór í leik með spænska stórliðinu
Jón Arnór í leik með spænska stórliðinu vísir/getty
Unicaja lagði Valencia 75-64 í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Jón Arnór Stefánsson skoraði 4 stig fyrir Unicaja.

Jafnræði var með liðunum framan af en Unicaja náði sex stiga forystu fyrir hálfleik 37-31. Unicaja var mun sterkari aðilinn í seinni hálfleik og náði mest 18 stiga forystu og vann öruggan sigur.

Jón Arnór skoraði 4 stig en hann hitti úr einu af fjórum þriggja stiga skotum sínum þær tíu mínútur sem hann lék í leiknum. Hann tók að auki 2 fráköst.

Unicaja hefur unnið 7 af 8 leikjum sínum í deildinni líkt og Barcelona en Real Madrid er á toppnum með fullt hús stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×