Innlent

Eftirlit með starfsháttum lögreglu verður skoðað

Bjarki Ármannsson skrifar
Eftirlit með starfsháttum lögreglu verður til skoðunar í nýja starfshópnum.
Eftirlit með starfsháttum lögreglu verður til skoðunar í nýja starfshópnum. Vísir/Stefán/Daníel
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur skipað starfshóp sem mun taka til skoðunar hvernig komið verði á virkara eftirliti með starfsháttum lögreglu.

Ragnheiður Harðardóttir, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, mun leiða hópinn en í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að ákveðið sé að hefja þessa vinnu vegna erinda sem borist hafa þar sem fjallað er um þá stöðu sem getur komið upp þegar íbúar landsins telja á sér brotið vegna lögreglu. 

Meðal þeirra sem hafa bent á þetta er ríkissaksóknari, sem sendi ráðuneytinu bréf í byrjun mánaðar þar sem hvatt er til þess að taka eftirlit með störfum lögreglu til skoðunar. Í bréfi sínu vísar ríkissaksóknari meðal annars til skotárásarinnar í Hraunbæ í desember þar sem maður lést vegna skotsára sem lögregla veitti honum. Einnig nefnir saksóknari sem dæmi mál þar sem handteknir menn hafa látist í fangaklefa.

Í tilkynningunni segir innanríkisráðherra:

„Markmiðið með þessu starfi er að treysta réttaröryggi enn frekar, efla öryggiskennd borgaranna og tryggja vandaða, skilvirka og réttláta málsmeðferð við rannsókn mála. Ríkissaksóknari bendir réttilega á, í nýlegu erindi sínu til innanráðuneytisins, að til að bæði lögregla og almenningur fái hlutlausa og réttláta málsmeðferð getið verið heppilegra að óháður aðila fjalli um meðferð mála er varða rannsóknir á starfsháttum lögreglu.

Allt þetta og fleira er viðkemur eftirliti með starfsháttum lögreglu almennt verður til skoðunar í umræddum starfshópi. Ragnheiður Harðardóttir héraðsdómari hefur víðtæka reynslu af málefnum ákæruvaldsins og réttarkerfisins. Ég er afar ánægð með að hún skyldi taka verkið að sér og vonast til að starfshópurinn nái að skila fyrstu tillögum eigi síðar en um næstu áramót.“



Tengdar fréttir

Lögreglan rannsaki sig ekki sjálf

Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, segir að skoða þurfi fyrirkomulag rannsókna á málum á borð við Hraunbæjarmálið til frambúðar. Ríkissaksóknari hefur sent ráðuneytinu erindi með tillögum að úrbótum á verklagi sem eru nú til skoðunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×