Innlent

Tafir á Reykja­nes­braut og víða óvissu­stig

Atli Ísleifsson skrifar
Frá Reykjanesbrautinni í morgun. Því er beint til vegfarenda á mjög smáum bílum að vera sem minnst á ferðinni á meðan veður gengur yfir.
Frá Reykjanesbrautinni í morgun. Því er beint til vegfarenda á mjög smáum bílum að vera sem minnst á ferðinni á meðan veður gengur yfir. Lögreglan

Færð er farin að spillast á Reykjanesbraut og eru nú umferðartafir vegna þessa. Það sem af er morgni hafa tvö ökutæki runnið út af veginum, en ekki hafa þó orðið meiðsl á fólki.

Frá þessu greinir á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurnesjum. Þar kemur fram að Grindavíkurvegur sé einnig orðinn þungfær og er hann tímabundið lokaður í norðurátt vegna ökutækis sem situr fast við Gíghæð.

Á vef Vegagerðarinnar segir að óvissustig sé á nokkrum leiðum fram á kvöld, svo sem á Hellisheiði og Þrengslum, Mosfellsheiði og víðar, og gætu vegir lokað með stuttum fyrirvara.

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir fyrir vestan vert landið í dag, fimmtudag.

Ennfremur segir að snjóþekja og mikil skafrenningur og hvassviðri sé nú á Reykjanesbrautinni og eru vegfarendur á mjög smáum bílum beðnir að vera sem minnst á ferðinni á meðan veður gengur yfir.

Þæfingsfærð er á Hellisheiði og hálka eða hálkublettir og skafrenningur á öðrum leiðum. Ófært er á Krýsuvíkurvegi en þungfært og éljagangur á Festarfjalli.


Tengdar fréttir

Gengur í storm með slyddu eða snjókomu

Það mun ganga í suðaustanhvassviðri eða -storm með slyddu eða snjókomu með morgninum, en rigningu við ströndina og hlýnar nokkuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×