Fótbolti

Svona kláraði FH Litháana

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
FH-ingar fagna marki Péturs í gær.
FH-ingar fagna marki Péturs í gær.
FH vann í gærkvöldi frækinn 1-0 útisigur á liði Ekranes í fyrri leik liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu.

Pétur Viðarsson, miðvörður FH-inga, skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik. Heimamenn sóttu töluvert í síðari hálfleik og fékk tréverk FH-inga að kenna á því í þrígang.

Heimir Guðjónsson var hæstánægður með úrslitin í Litháen að leik loknum í samtali við Vísi en minnti um leið á að stríðið væri aðeins hálfnað.

Myndband úr leiknum, sem hefst á sigurmarki Péturs Viðarssonar, má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×