Fótbolti

Tvær ákærðir fyrir morðtilraun á stuðningsmönnum Spurs

Stuðningsmenn Lazio á leiknum í gær.
Stuðningsmenn Lazio á leiknum í gær.
Tveir stuðningsmenn Roma hafa verið handteknir og ákærðir fyrir morðtilraun. Þeir réðust á stuðningsmenn Tottenham fyrir leik enska liðsins gegn Lazio sem einnig er staðsett í Rómarborg.

Gengi, sem styður Roma, réðst á hóp stuðningsmanna Spurs með hnífum og hnúajárnum. Einn stuðningsmaður Spurs særðist illa en hann fékk skurð í andlit og fótlegg.

Stuðningsmenn Spurs voru að hafa það náðugt með öl á knæpu er gengið réðst á þá með miklum látum. Englendingarnir vissu ekki sitt rjúkandi ráð og höfðu ekkert af sér gert.

Stuðningsmenn Lazio urðu sér síðan til skammar á leiknum með gyðingahatri og öðru mishuggulegu. Hefur verið hvatt til þess að félaginu verði refsað grimmilega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×