Fótbolti

Ragnar og Rúrik með í jafntefli í Stuttgart

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rúrik Gíslason er á mála hjá FCK rétt eins og þeir Sölvi Geir Ottesen og Ragnar Sigurðsson.
Rúrik Gíslason er á mála hjá FCK rétt eins og þeir Sölvi Geir Ottesen og Ragnar Sigurðsson. vísir/afp
FC Kaupmannahöfn gerði markalaust jafntefli við Stuttgart í kvöld og er fyrir vikið áfram í 2. sæti riðils síns í Evrópudeildinni.

Ragnar Sigurðsson spilaði allan leikinn fyrir FCK og Rúrik Gíslason fyrstu 80 mínúturnar. Sölvi Geir Ottesen sat allan tímann á bekknum.

FCK hefur náð 4 stigum út úr fyrstu þremur leikjum sínum en Stuttgart er á botni riðilsins með tvö stig. Steaua Bucuresti vann Molde í kvöld og er komið með þriggja stiga forskot á toppnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×