Fótbolti

Lygilegur sigur AIK í Rússlandi | Heerenveen úr leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leik Heerenveen og Molde í kvöld.
Úr leik Heerenveen og Molde í kvöld. Nordic Photos / AFP
Helgi Valur Daníelsson spilaði allan leikinn þegar að sænska liðið AIK vann ótrúlegan 2-0 sigur á CSKA Mosvku í Rússlandi og tryggði sér þar með sæti í riðlakeppni Evrópudeildar UEFA í vetur.

Hollenska liðið Heerenveen er hins vegar úr leik eftir 4-1 samanlagt tap fyrir Noregsmeisturum Molde. Alfreð Finnbogason er á mála hjá Heerenven en gat ekki spilað með liðinu í kvöld þar sem hann spilaði með sænska liðinu Helsingborg í forkeppni Meistaradeilar Evrópu fyrr í sumar.

Alfreð hefði mátt spila með liðinu í riðlakeppninni ef liðið hefði komist áfram úr forkeppninni.

Sænska liðið AIK náði hins vegar að komast áfram eftir spennandi leik í Rússlandi í kvöld. Heimamenn í CSKA Moskvu höfðu 1-0 forystu eftir fyrri leikinn, sem fór fram í Svíþjóð, en Helgi Valur Daníelsson og félagar hans náðu að snúa einvíginu sér í hag og vinna 2-0 sigur í kvöld.

Þar með vann AIK samanlagðan 2-1 sigur. Kwame Amponsah Karikari skoraði fyrra mark AIK strax á sjöttu mínútu og þannig stóðu leikar fram í uppbótartíma leiksins. Martin Lorentzson skoraði þá aftur fyrir AIK, með síðustu spyrnu leiksins, og tryggði liðinu þar með sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

CSKA Mosvka komst í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu á síðasta tímabili og var mun meira með boltann í kvöld. Liðið átti 31 marktilraun í leiknum, þar af níu sem rötuðu á markið, en ekki vildi boltinn inn. Svíarnir áttu tvö skot á markið og bæði fóru inn. Þeir fögnuðu því lygilegum sigri.

Nokkrum leikjum er lokið og má sjá úrslit þeirra hér fyrir neðan. Fjölmargir leikir hefjast svo um það leyti sem þetta er skrifað en forkeppninni lýkur í kvöld.

Þess má geta að KR-banarnir í HJK Helsinki komust ekki áfram eftir að hafa steinlegið fyrir Athletic Bilbao samanlagt, 9-3.

Evrópudeild UEFA, lokaumferð forkeppninnar:

Apoel (Kýpur) - Neftchi Baku (Aserbaídsjan) 3-1 (2-4)

HJK Helsinki (Finnlandi) - Athletic Bilbao (Spáni) 3-3 (3-9)

Dila Gori (Georgíu) - Maritimo (Portúgal) 0-2 (0-3)

Heerenveen (Hollandi) - Molde (Noregi) 1-2 (1-4)

Hapoel Tel Aviv (Ísrael) - F91 Dudelange (Lúxemborg) 4-0 (7-1)

CSKA Moskva (Rússlandi) - AIK (Svíþjóð) 0-2 (1-2)

Rosenborg (Noregi) - Legia Varsjá (Póllandi) 2-1 (3-2)

Dnipro Dnipropetrovesk (Úkraínu) - Slovan Liberec (Slóvakíu) 4-2 (6-4)

Dynamo Moskva (Rússlandi) - Stuttgart (Þýskalandi) 1-1 (1-3)

PSV Eindhoven (Hollandi) - Zeta (Svartfjallalandi) 9-0 (14-0)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×