Fótbolti

Gott kvöld fyrir spænsku liðin í Evrópudeildinni | Úrslit og markaskorarar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eduardo Salvio.
Eduardo Salvio. Mynd/Nordic Photos/Getty
Spænsku liðin unnu góða sigra í leikjum sínum í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld og Manchester-liðin þurftu bæði að sætta sig við tap. Atlético Madrid og Valencia unnu bæði tveggja marka sigra en fengu á sig mörk á lokasprettinum. Athletic Bilbao vann frábæran sigur á Old Traffird.

Tvö mörk frá Argentínumanninum Eduardo Salvio og eitt frá Adrian Lopez kom Atlético Madrid í 3-0 á móti Besiktas eftir 37 mínútur en Tyrkirnir minnkuðu muninn í seinni hálfleik.

Roberto Soldado skoraði tvö mörk og þeir Victor Ruiz og Pablo Piatti eitt hvor þegar Valencia komst í 4-0 á móti hollenska liðinu PSV en leikmenn PSV skoruðu tvö mikilvæg mörk í lokin og eiga enn smá möguleika.

Jóhann Berg Guðmundsson spilaði síðustu sextán mínúturnar þegar AZ Alkmaar vann 2-0 sigur á ítalska liðinu Udinese.

Birkir Bjarnason kom inn á sem varamaður í blálokin þegar Standard Liege gerði 2-2 jafntefli á heimavelli á móti þýska liðinu Hannover 96.

Hér fyrir neðan má sjá úrslit og markaskorara kvöldsins.



Úrslit og markaskorarar í leikjum kvöldsins:

Metalist Kharkiv - Olympiacos 0-1

0-1 David Fuster (50.)

Sporting Lisbon - Man. City 1-0

1-0 Xandao (51.)

Atletico Madrid - Besiktas 3-1

1-0 Eduardo Salvio (24.), 2-0 Eduardo Salvio (27.), 3-0 Adrian Lopez (37.), 3-1 Simão Sabrosa (53.)

Twente - Schalke 1-0

1-0 Luuk De Jong (61.)

Manchester United - Athletic Bilbao 2-3

1-0 Wayne Rooney (22.), 1-1 Fernando Llorente (44.), 1-2 Oscar De Marcos (72.), 1-3 Iker Muniain (89.), 2-3 Wayne Rooney, víti (90.+2)

AZ Alkmaar - Udinese 2-0

1-0 Maarten Martens (63.), 2-0 Erik Falkenburg (84.). Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á sem varamaður á 74. mínútu.

Standard Liege - Hannover 96 2-2

0-1 Lars Stindl (22.), 1-1 Yoni Buyens (27.), 2-1 Mohamed Tchité (30.), 2-2 Mame Biram Diouf (56.). Birkir Bjarnason kom inn á sem varamaður 89. mínútu.

Valencia - PSV 4-2

1-0 Victor Ruiz (11.), 2-0 Roberto Soldado (13.), 3-0 Roberto Soldado (43.), 4-0 Pablo Piatti (56.), 4-1 Ola Toivonen (83.), 4-2 Georginio Wijnaldum (90.)








Fleiri fréttir

Sjá meira


×