Bryndís búin að semja við KR - áfall fyrir Keflavík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. maí 2011 19:00 Bryndís Guðmundsdóttir með Íslandsbikarinn í vor. Mynd/Daníel
Kvennalið KR fékk mikinn liðstyrk í dag þegar landsliðskonan Bryndís Guðmundsdóttir skrifaði undir samning við KR-liðið. Bryndís átti frábært tímabil í vetur og var lykilmaður í þreföldum sigri Keflavíkurliðsins. Bryndís er 23 ára gamall framherji sem hefur spilað alla tíð með Keflavík fyrir utan hálft tímabil þar sem hún spilaði með belgíska liðinu Royal Charleroi. Það er ljóst að það er mikið áfall fyrir Keflvíkinga að missa Bryndísi yfir í KR. Bryndís var með 14,0 stig, 8,1 fráköst og 3,4 stoðsendingar að meðaltali í Iceland Express deildinni í vetur en hún skoraði síðan 15,1 stig að meðaltali í úrslitakeppninni. Bryndís var kosin í úrvalslið deildarinnar í lok tímabilsins og kom sterklega til greina sem besti leikmaður tímabilsins. Margrét Kara Sturludóttir og Hafrún Hálfdánardóttir skrifuðu á sama tíma undir nýjan samning við KR-liðið. Margrét Kara er búin að vera í KR frá því um áramótin 2008 til 2009 en Hafrún var að klára sitt fyrsta tímabil í Vesturbænum. KR missti fyrirliða sinn Hildi Sigurðardóttur í Snæfell á dögunum en með tilkomu Bryndísar er ljóst að KR-liðið verður áfram í baráttunni um titlana næsta vetur.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Skortir Liverpool breidd þrátt fyrir gríðarleg fjárútlát síðasta sumar? Enski boltinn Ógeðslega erfitt og ógeðslega vont en brosir oft í viku á eftir Sport „Nú er nóg komið“ Fótbolti Sádar eru ekki að fara að byggja HM-leikvang ofan á skýjakljúfi Fótbolti „Búnir að sýna hvað við getum verið lélegir“ Körfubolti Hetja Englands á EM sleit krossband Enski boltinn NBA-leikmaður með krabbamein Körfubolti Lofar frekari fjárfestingum Enski boltinn Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 42-31 | Þrot í Þýskalandi Handbolti Haukur Helgi: Höfum ekki verið að spila góðan körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir NBA-leikmaður með krabbamein Haukur Helgi: Höfum ekki verið að spila góðan körfubolta „Getum verið fjandi góðir“ Uppgjörið: Álftanes-Njarðvík 93-92 | Heitur Haukur var hetjan á Álftanesinu Uppgjörið: Keflavík - Þór Þ. 86-82 | Þarf ekki alltaf að vera fallegt ef það virkar „Varnarleikur snýst eiginlega bara um að nenna“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 55-90 | Taplausir Grindvíkingar kjöldrógu Val „Búnir að sýna hvað við getum verið lélegir“ KR - ÍA 109-75 | KR-ingar sýndu allar sínar bestu hliðar þegar þeir burstuðu Skagamenn Íslandsmeistararnir frá því fyrir sextíu árum heiðursgestir í kvöld „Hann ætti bara að skrifa afsökunarbiblíuna“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 85-84| Njarðvík fyrstar til að leggja Grindavík af velli Ótrúleg dramatík í Garðabæ og á Sauðárkróki Landsliðsmennirnir öflugir í Evrópu Jordan gagnrýnir álagsstjórnun í NBA: Þú hefur skyldu til að láta sjá þig Skiptiborð hjá stelpunum í kvöld Var með skattinn á hælunum þegar hann fór í veðmálabraskið Bíll Shaquille O'Neal enn ófundinn Martin öflugur í góðum sigri Öllum leikjum Bónus-deildar kvenna í kvöld frestað Stólarnir ekki í vandræðum á Egilsstöðum Enginn Lakers-maður hafði náð þessu í meira en 52 ár Veðmál rædd í Körfuboltakvöldi: „Bara ævintýralega heimskulegt“ Kvöddu húsið og Nablinn klifraði í kveðjuskyni Martin naut sín í fræknum sigri á meisturum Bayern Tryggvi lykilmaður í sigri Bilbao Elvar skoraði tólf í naumu tapi Tilþrifin: Varin skot og ótrúlegar körfur Valsmanna Þriðja tapið í röð hjá Jóni og félögum Fáránlegt eða klókt hjá Kristófer? „Ef það má þá gerir fólk það“ Sjá meira