Handbolti

Ósigrar hjá Einari og Gylfa

Elvar Geir Magnússon skrifar
Einar Örn skoraði fjögur mörk í kvöld en það dugði skammt fyrir Minden.
Einar Örn skoraði fjögur mörk í kvöld en það dugði skammt fyrir Minden.

Tveir leikir voru í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Íslendingar voru í eldlínunni í báðum leikjum.

Gylfi Gylfason skoraði tvö mörk fyrir Wilhelmshaven sem tekið var í kennslustund gegn Hamborg. Hamborg vann stórsigur 44-17.

Þá vann Füchse Berlin sigur á Minden 32-26 en Einar Örn Jónsson skoraði fjögur mörk fyrir Minden.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×