Keflavík burstaði Hauka Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. febrúar 2008 21:27 Kesha Watson skoraði 34 stig fyrir Keflavík í kvöld. Mynd/E. Stefán
Tveir leikir fóru fram í Iceland Express deild kvenna þar sem efsta lið deildarinnar, Keflavík, vann stórsigur á Íslandsmeisturum Hauka. Niðurstaðan var 48 stiga sigur, 106-58, en staðan í hálfleik var 56-30. Kesha Watson var stigahæst hjá Keflavík með 34 stig auk þess sem hún stal níu boltum. Birna Valgarðsdóttir skoraði 22 stig á aðeins nítján mínútum en Susanne Biemer kom næst með fimmtán stig. Hjá Haukum var Telma Björk Fjalarsdóttir stigahæst með fjórtán stig auk þess sem hún tók sautján fráköst í leiknum. Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði ellefu stig. Þá vann Hamar góðan sigur á Fjölni í Grafarvogi, 78-50. Sigurinn hjá Hamri var nokkuð auðveldur en staðan í hálfleik var 43-23, Hamar í vil. Fjölnir gerði sig líklegt til að hleypa spennu í leikinn í þriðja leikhluta en sú barátta var á þunnum grunni byggð. Hamarsstúlkur sögðu hingað og ekki lengra og innbyrtu öruggan og jafnframt auðveldan sigur. Iva Milevoj var stigahæst hjá Hamri með 23 stig en La K. Barkus kom næst með sautján stig. Slavica Dimovska var stigahæst hjá Fjölni með 27 stig. Keflavík er enn á toppi deildarinnar með 36 stig og fjögurra stiga forskot á KR sem er í öðru sæti. Liðin mætast í næstu umferð og ef Keflavík vinnur tryggir liðið sér deildarmeistaratitilinn. Haukar eru í fjórða sæti með 26 stig, fjórum stigum á eftir Grindavík. Hamar er í sjötta sæti með átta stig og Fjölnir í sjöunda og neðsta sæti með tvö stig.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Fleiri fréttir Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Sjá meira