Sport

Evrópudraumur Newcastle úti

Evrópudraumur Newcastle United er úti eftir 2-1 tap fyrir Deportivo La Coruna á heimavelli í kvöld en þetta var seinni leikur liðanna í Intertoto keppninni. Spænska liðið vann því samanlagt 4-2 þar sem enska liðið tapaði einnig þeim fyrri á Spáni 2-1. Newcastle dugði 1-0 sigur í kvöld og þeir náðu þeirri forystu með marki James Milner. En Jorge Andrade og Pedro Munitis skoruðu þá tvívegis fyrir gestina og þar með er ljóst að Alan Shearer hefur fallið út úr Evrópukeppni í síðasta sinn á ferli hans sem lýkur eftir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×