Tónlist
217 218 219 220 221 222 223 224 225 … 225 ›
Gefa út DVD Rokksveitin Guns "N" Roses gefur hinn 5. febrúar á næsta ári út DVD-mynddiskinn Live in Chic-ago. Á disknum verða meðal annars lögin Mr. Brownstone, Live and Let Die, Patience, Civil War, Welcome to the Jungle og November Rain sem hljómsveitin flutti á tónleikum í Chicago. Tónlist 18.11.2006 10:00
Á lag í bandarískum kántrí-raunveruleikaþætti Gísli Jóhannsson, betur þekktur sem Gis, hefur loksins látið gamlan draum rætast og komið sér fyrir í mekka kantrí-tónlistarinnar, Nashville. „Hérna er nú bara rok og rigning,“ segir Gísli þegar Fréttablaðið hafði samband við hann. Tónlist 18.11.2006 09:30
Ampop siglir til tunglsins Hljómsveitin Ampop gefur út sína fjórðu plötu, Sail to the Moon, á þriðjudag. Platan fylgir eftir vinsældum My Delusions sem kom út seint á síðasta ári. Tónlist 18.11.2006 09:00
Einfalt og hrífandi gospel Páll Óskar Hjálmtýsson, Eiríkur Hauksson og Margrét Eir syngja saman gospelsálma á nýrri plötu frá útgáfufyrirtækinu Frost sem nefnist Horfðu til himins. Tónlist 17.11.2006 16:30
Brjálað stuð á Basshunter á Broadway Í vikunni var haldið ball fyrir grunn- og framhaldsskólanema á Broadway af útvarpsstöðinni Flass 104,5. Hápunktur kvöldsins var þegar plötusnúðurinn Basshunter steig á svið ásamt dönsurum. Basshunter hefur gert allt vitlaust í Evrópu með lögunum Boten Anna og Vi sitter i ventrilo och spelar Dota. Tónlist 17.11.2006 16:00
Stones á toppnum Tónleikaferð rokkhundanna í The Rolling Stones, Bigger Bang, hefur verið valin tónleikaferð ársins af bandaríska tónlistartímaritinu Billboard. Byggðist valið á aðsóknartölum og því hversu mikið tónleikaferðin þénaði. Tónlist 17.11.2006 14:00
Uppgjörsplata Ívars Fyrsta plata Ívars Bjarklind, Blóm eru smá, er komin út. Á persónlegan hátt gerir Ívar þar upp líf sitt með fallegum lagasmíðum og innihaldsríkum textum. Tónlist 17.11.2006 13:45
Útgáfutónleikar Lay Low Nú er komið að útgáfutónleikum plötunnar "Please Don´t Hate Me" og fara þeir fram miðvikudagskveldið 29. nóvember n.k. í Fríkirkjunni í Reykjavík. Forsala hefst laugardaginn 18. nóvember kl. 12:00 í verslunum Skífunnar og á www.midi.is Tónlist 17.11.2006 13:24
Bó á vinsældalista í Þýskalandi „Nei nei, og þó …jú," svarar Björgvin Halldórsson stórsöngvari spurður út í fréttir þess efnis að lagið Eina ósk í hans flutningi sé að slá í gegn í Þýskalandi um þessar mundir. Tónlist 17.11.2006 13:15
Queen hefur selt mest allra Hljómsveitin Queen á mest seldu plötu allra tíma í Bretlandi, safnplötuna Greatest Hits sem kom út árið 1981. Alls hefur platan selst í rúmlega 5,4 milljónum eintaka þar í landi. Tónlist 17.11.2006 12:15
Justin hjálpar Duran Söngvarinn Justin Timberlake þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af nýjustu plötu sinni „Futuresex/lovesounds" en hún selst í bílförmum þessa dagana. Tónlist 17.11.2006 12:00
Miðasala í Laugardalshöll í dag Enn eru til miðar á 20 ára afmælistónleika Sykurmolanna í kvöld, föstudagskvöldið 17. nóvember, í Laugardalshöll. Miðasala fer fram í verslunum Skífunnar Kringlunni og Smáralind, BT Akureyri, Selfossi og Egilstöðum og á Midi.is. Tónlist 17.11.2006 11:40
Jólatónleikar Fíladelfíu Jólatónleikar Fíladelfíu verða haldnir í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu, 5. og 6. desember kl. 20 og kl. 22, bæði kvöldin. Flytjendur eru Gospelkór Fíladelfíu undir stjórn Óskars Einarssonar, Björgvin Halldórsson, Hera Björk, Maríanna Másdóttir, Þóra Gréta Þórisdóttir og Edgar Smári ásamt fjölda annarra einsöngvara. Tónlist 17.11.2006 11:30
Í bolla hafið bjarta Þeir sem eitt sinn voru unglingastjörnur geta átt í miklum erfiðleikum með að höndla lífið og ná jarðsambandi á ný. Breti af grískum ættum valdi sér á sjöunda áratugnum listmannasnafnið Cat Stevens og náði sem slíkur miklum vinsældum, kom fótum undir plötufyrirtækið Island, var umvafinn fögrum konum og mikilli velsæld en koksaði á öllu á frægum konsert í Aþenu og gekk af sviðinu. Tónlist 17.11.2006 11:00
Er gullöldin að líða undir lok? Það hefur farið minna fyrir hiphop-tónlist á plötusölulistum í ár heldur en undanfarin ár. Nú eru hins vegar að koma út nýjar plötur með nokkrum af stærstu nöfnunum í rappinu. Tónlist 17.11.2006 09:30
U2 vinnur dómsmál Írska hljómsveitin U2 hefur unnið dómsmál sem hún höfðaði gegn fyrrverandi útlitshönnuði sínum, Lolu Cashman. Var hún sökuð um að hafa tekið muni í eigu sveitarinnar án leyfis á meðan á tónleikaferð hennar stóð vegna Joshua Tree-plötunnar árið 1987. Tónlist 16.11.2006 16:00
Trommutaktar og lúðrar Jónas Sigurðsson, fyrrum söngvari Sólstrandagæjanna, hefur gefið út sína fyrstu sólóplötu sem nefnist Þar sem malbikið svífur mun ég dansa. Jónas hefur starfað síðustu ár við hugbúnaðargerð hjá Microsoft í Danmörku. Tónlist 16.11.2006 15:30
Megas endurútgefinn og nýr Í dag, 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu, koma þrjár af plötum Megasar út á nýjan leik. Þetta er í annað sinn sem Íslenskir tónar senda frá sér veglegar endurútgáfur á plötum Megasar en árið 2002 komu 10 fyrstu sólóplötur meistarans út ásamt miklu aukaefni við mikinn fögnuð aðdáenda. Tónlist 16.11.2006 14:17
Salzburgarárin hans Mozarts Í kvöld verða tónleikar hjá Sinfóníunni sem helgaðir eru verkum Mozarts sem hann samdi í þjónustu erkibiskupsins í Salzburg. Verður Hamrahlíðarkórinn í stóru hlutverki á tónleikunum. Á efnisskránni er verkið Exultate jubilate, eitt frægasta æskuverk Mozarts, auk tveggja verka sem Mozart samdi við Maríutextann Regina Coeli. Tónlist 16.11.2006 14:15
Eingöngu lög og textar eftir konur Á morgun kemur út geisladiskurinn Sögur af konum þar sem Selma og Hansa syngja 12 ný lög eftir íslenskar konur. Sögur af konum inniheldur 12 ný íslensk lög og texta eftir íslenskar konur. Selmu og Hönsu langaði til að gera tónlistarkonum á Íslandi hátt undir höfði og velja eingöngu lög og texta eftir konur. Tónlist 16.11.2006 14:05
Roof Tops snúa aftur Upp úr 1966 tók að heyrast hér tónlist sem stakk í stúf við gítargutlið sem drengjapoppið hafði sem megineinkenni. Fyrstu hljómarnir bárust hingað um Kanaútvarpið og takturinn var annar, söngurinn rámari og blár og saxó-fónar og önnur blásturstól áberandi. Tónlist 16.11.2006 14:00
Nýtt starfsár hafið hjá Sinfóníu Norðurlands Vetur er að leggjast yfir Norðurland og þá taka hljóðfæraleikarar í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands að stilla saman strengi sína. Fjórtánda starfsár þeirra er að hefjast. Skólatónleikar skipa stóran sess í dagskrá vetrarins. Tónlist 16.11.2006 13:30
Kærastarnir algjörar hetjur að bíða heima Þær Alma, Klara, Emilía og Steinunn eru ekki beint venjulegar stúlkur á þrítugsaldri. Á rúmum sex mánuðum hafa stöllurnar komið fram sjö sinnum á stærsta leikvangi Bretlands, Wembley, og fjörið er bara rétt að byrja. Nylon, litla hljómsveitin sem margir höfðu ekki trú á, virðist vera búin að sýna sig og sanna. Tónlist 16.11.2006 12:45
Jónas og Kristinn í Salnum Þeir félagar Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson verða með ljóðatónleika í Salnum á laugardag kl. 16. Ljóðatónleikar þeirra hafa löngum verið hápunktur í starfi Salarins og hafa þeir verið duglegir að koma fram, eiga sér dyggan aðdáendahóp sem sækir alla þeirra tónleika enda er frammistaða þeirra rómuð á þessum heimilislegu tónleikum. Tónlist 16.11.2006 12:30
Hugarsmíð Simons Cowell slær í gegn X Factor-keppnin hefst á Íslandi á morgun. Þótt keppnin eigi sér ekki langa sögu nýtur hún mikilla vinsælda um allan heim enda er bryddað upp á þeirri nýjung að dómarar eru ekki síður í keppni innbyrðis en þátttakendurnir sjálfir. Tónlist 16.11.2006 11:45
Halli í tónleikaferð Trúbadorinn Halli Reynis er að senda frá sér sína sjöundu plötu sem nefnist Fjögurra manna far. Er hún gefin út á vegum Músík ehf. og er þetta í fyrsta sinn sem Halli gerir útgáfusamning á ferli sínum. Í tilefni plötunnar ætlar hann að halda einn með gítarinn í tónleikaferð sem byrjar í kvöld á Græna hattinum á Akureyri. Nánari upplýsingar um tónleikaferðina má fá á Hallireynis.com. Tónlist 16.11.2006 11:15
Guðrún í Fríkirkjunni Útgáfutónleikar söngkonunnar Guðrúnar Árnýjar verða haldnir í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld klukkan 20.00. Þar flytur Guðrún lög af fyrstu sólóplötu sinni, Eilíft augnablik, sem kom út nú í vikunni. Tónlist 16.11.2006 11:00
Gerðu barnaplötu sem lokaverkefni Félagarnir Halli og Heiðar úr rokksveitinni Botnleðju hafa gefið út barnaplötuna Pollapönk. Þetta er fyrsta barnaplatan sem þeir gera í sameiningu en áður hafði Halli gefið út plötuna Hallilúja þar sem hann naut aðstoðar ýmissa tónlistarmanna, þar á meðal Heiðars. Tónlist 16.11.2006 10:45
Djassað í Dómó Múlinn er nú sestur að í glæsilegu nýju húsnæði hinna geðþekku lífskúnstnera Kormáks og Skjaldar, Domo í Þingholtsstræti. Í kvöld mæta í spilamennsku þar hressu strákarnir í Prímal Freeman til að halda uppi þéttri stemningu: Helgi Svavar Helgason, Róbert Reynisson, Davíð Þór Jónsson, Eiríkur Orri Ólafsson og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson. Tónlist 16.11.2006 09:30
17 smáskífulög og 23 myndbönd Hljómsveitin Depeche Mode hefur gefið út safnplötuna The Best Of Depeche Mode: Volume 1. Platan hefur að geyma 17 smáskífulög sveitarinnar sem flest hver hafa notið mikilla vinsælda undanfarin 25 ár. . Tónlist 16.11.2006 07:30