Tíska og hönnun

Töskusafn súperfyrirsætu
Ofurfyrirsætan Miranda Kerr þykir ekki bara eins sú fremsta á sínu sviði heldur þykir hún afar smart líka. Í meðfylgjandi myndasafni má sjá brot af þeim töskum sem fyrirsætan hefur sést með, bæði í daglega lífinu sem og á rauða dreglinum.

Amanda Seyfried í umdeildu dressi
Leikkonan stórglæsilega, Amanda Seyfried, mætti á rauða dregilinn á Tony Awards Í New York á dögunum í líklega umtalaðasta dressi kvöldsins. Leikkonan var í fallega fjólubláum Givenchy kjól með mjóum hlýrum en það sem vakti minni lukku var rauða beltið, varaliturinn og veskið sem hún bar við. Dæmi hver fyrir sig!

Dress vikunnar
Það var vandasamt verk að velja dress vikunnar samkvæmt pressunni vestanhafs...

Rokkuð á rauða dreglinum
Þýska fyrirsætan Heidi Klum, 39 ára, var rokkuð í Roberto Cavalli dragt sem fór henni áberandi vel þegar hún stillti sér upp á rauða dreglinum...

Olsen-systur kvenhönnuðir ársins
Hin árlegu CDFA-verðlaun, Counsel of Fashion Designers of America, fóru fram í New York á mánudagskvöldið. Tvíburasysturnar Mary-Kate og Ashley Olsen voru valdar kvenhönnuðir ársins fyrir fatamerkið sitt The Row og skutu mörgum þungavigtarmönnum í hönnunarbransanum ref fyrir rass. Tískuelítan var mætt á rauða dregilinn þar sem menn kepptust við að skarta sínu fínasta pússi. William Reid var valinn karlhönnuður ársins og leikarinn Johnny Depp var tískufyrirmynd ársins.

Gossip Girl stjarna í Jimmy Choo skóm
Gossip Girl stjarnan Leighton Meester, 26 ára, var glæsilega á rauða dreglinum klædd í blá-gráan munstraðan kjól við svarta Jimmy Choo skó...

Styrkja hönnuði um 10 milljónir
Hönnunarsjóður Auroru veitti 10 milljónir í styrki til hönnuða á fimmtudaginn var en að þessu sinni er lögð áhersla á fatahönnun...

Rauði dregillinn í gær - hversdagleiki í dag
Ofurfyrirsætan Naomi Campbell var klædd í gallapils með derhúfu þegar hún verslaði ásamt rússneska kærastanum sínum, milljónamæringnum Vladislav Doronin, á Ibiza á Spáni...

Jessica Alba sló í gegn í hvítum kjól
Leikkonan unga og glæsilega, Jessica Alba þótti ein best klædda kona MTV hátíðarinnar um helgina.

Ný bók á leiðinni
Skáldsagan The Devil Wears Prada sló í gegn árið 2003 og nú geta aðdáendur bókarinnar glaðst því von er á framhaldi hennar innan skamms.

Nostalgísk opnun
Verslunin Nostalgía hefur flutt sig um set og var opnuð við Laugaveg 39 á fimmtudaginn var. Starfsfólk verslunarinnar fagnaði áfanganum með gestum og gangandi, bauð upp á léttar veitingar og naut sólargeislanna sem vermdu vanga.

Kennir að segja sögu með mynd
„Ég er rosa spennt að getað loksins komið heim í smá sumarfrí og haldið námskeiðið í leiðinni,“ segir ljósmyndarinn Saga Sigurðardóttir sem ætlar að halda námskeið í tískuljósmyndun á Lunga-listahátíðinni í sumar. Hátíðin fer fram í á Seyðisfirði dagana 15.-22. júlí en þetta er í fyrsta sinn sem Saga heldur námskeið hér á landi. Saga er búsett í London þar sem hún hefur getið sér góðs orð sem ljósmyndari og hafa myndir eftir hana birst í helstu tískumiðlum heims á borð við Dazed and Confused, ID og Nylon.


Gallabuxur í dag - galakjóll í gær
Bandaríska leikkonan Jessica Alba, 31 árs, klæddist svörtum síðkjól frá Alexander McQueen á verðlaunahátíð Glamour Women. Leikkonan, sem var stórglæsileg með hárið tekið aftur, fór heim með viðurkenningu. Þá má sjá Jessicu klædda í gallabuxur með hatt á höfði á flugvellinum í Lundúnum daginn eftir hátíðina.

Strigaskór úr roði
Skóframleiðandinn Rayfish Footwear framleiðir sérhannaða strigaskó úr roði gaddaskötu og kostar parið rúmar 235 þúsund krónur.

Skrautlegar neglur í sumar
Ekkert lát virðist vera á skrautlegri tísku naglalakka heldur þvert á móti. Allt virðist vera leyfilegt sama hversu frumlegt það er.

Flottasti kjóllinn á Cannes
Það voru margir fagrir kjólar sem voru frumsýndir á kvikmyndahátíðinni í Cannes þetta árið. Þessi Dior-kjóll sem leikkonan Diane Kruger klæddist á lokakvöldi hátíðarinnar sló aftur á móti alla hina út. Kjóllinn er dragsíður með stífu undirpilsi og því spurning hvernig Kruger hafi gengið að setjast niður í kjólnum þegar líða tók á kvöldið.

Nýtt andlit Material Girl
Georgia May Jagger, dóttir tónlistarmannsins Micks Jagger og fyrirsætunnar Jerry Hall, er nýtt andlit fatalínunnar Material Girl sem hönnuð er af Madonnu og dóttur hennar, Lourdes Leon.

Halló Neon!
Sumarið er tíminn og með sumrinu koma litirnir. Nú í ár eru litirnir heldur skærari en áður hefur verið. Neon hefur ekki verið áberandi í húsmunum en nú er öldin önnur og Neon kemur sterkt inn á heimilin...

Græða á götutísku
Scott Schuman og Garance Doré halda úti tískublogginu The Sartorialist, sem hefur lengi verið eitt vinsælasta götutískubloggið á veraldarvefnum. Parið var jafnframt það fyrsta sem hafði góðar tekjur af slíku bloggi og er nú komið í hóp þeirra áhrifamestu innan tískuheimsins.

Júniform lokar
Birta Björnsdóttir, fatahönnuður sem rekið hefur verslunina Júniform í tíu farsæl ár heldur nú á vit ævintýranna þar sem hún flytur til Barcelona með fjölskylduna.

Ljótufatakeppni á Billboard
Billboard verðlaunahátíðin fór fram í Las Vegas um helgina og stjörnurnar flykktust til eyðimerkurborgarinnar af því tilefni. Adele vann flest verðlaun kvöldsins en hún var fjarri góðu gamni. Kempurnar í hljómsveitinni U2 voru valdir bestir á tónleikum og Coldplay rokksveit ársins. Rauða dreglinum var að sjálfsögðu rúllað út og óhætt að segja að klæðaburður gestanna hafi verið með fjölbreyttara móti. Það mætti halda að sumir væru mættir á ljótufatakeppni.

Bláa Lónið bakhjarl Hönnunarmiðstöðvar Íslands
Bláa Lónið og Hönnunarmiðstöð Íslands hafa gert með sér samstarfssamning og er Bláa Lónið fyrsta fyrirtækið til að gerast bakhjarl Hönnunarmiðstöðvar..

Stella McCartney hannar brúðarkjól Sólveigar Kára
Fatahönnuðurinn Stella McCartney hannar brúðarkjól Sólveigar Káradóttur en hún gengur að eiga tónlistarmanninn Dhani Harrison í næstu viku. Harrison er sonur Bítilsins sáluga George Harrison en parið hefur verið saman í nokkur ár og býr saman í Los Angeles.

Óvenjuleg dress
Hvort sem það er Jean Paul Gaultier, Commes des Garçon, Jeremy Scott, Issey Miyake eða Thierry Mugler þá fer ekki á milli mála að þessi tískuhús eða hönnuðir fara ótroðnar slóðir þegar kemur að fatnaði. Athyglisverða hönnun þar sem hugmyndaflugið fær að njóta sín má skoða í meðfylgjandi myndasafni.

Scarlett í Dolce&Gabbana
Leikkonan Scarlett Johansson, 27 ára, var mynduð við tökur...

Undirfataverslun opnar í Kringlunni
Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar ný undirfataverslun, Boux Avenue, opnaði í Kringlunni...

Diane Kruger skein skært á rauða dreglinum
Leikkonan Diane Kruger skein skært á rauða dreglinum á frönsku kvikmyndahátíðinni í Cannes um helgina. Diane klæddist undurfögrum Vivienne Westwood kjól og var með klassíska hárgreiðslu í stíl. Örlítil rigning gerði vart við sig á meðan stjörnurnar gengu inn dregilinn en þær létu það lítið á sig fá eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Fallegustu kjólar vikunnar
Fallegustu kjólar vikunnar ef ekki ársins hafa verið valdir af pressunni vestanhafs.

Veldu réttu sólgleraugun fyrir sumarið
Það er sá tími ársins sem fólk dregur upp sólgleraugun á ný.